Categories

//

Dagur einhleypra 2026 var stærri en nokkur netverslunardagur 2025

by

Team Teya

Stærsti netverslunardagur ársins til þessa

Dagur einhleypra, 11. nóvember, er stærsti netverslunardagur ársins 2026 til þessa í gögnum Teya. Hjá verslunum sem seldu á netinu bæði árin var verslað um fimmtungi oftar en á degi einhleypra í fyrra.

Dagurinn hefur á skömmum tíma orðið einn stærsti verslunardagur ársins og hann virðist ætla að halda áfram að vaxa. Árið 2025 var hann stærsti einstaki netverslunardagur ársins, með um fjórðungi fleiri kaup en svarti föstudagurinn (Black Friday) og um 9% fleiri en netmánudagurinn (Cyber Monday).

Dagur einhleypra 2026 var stærri en nokkur netverslunardagur ársins 2025

Fjöldi netkaupa hjá sömu verslunum bæði árin. Vísitala: dagur einhleypra 2025 = 100

Svartur föstudagur heldur þó velli sem stærsta verslunarhelgin. Frá svörtum föstudegi til netmánudags 2025 var verslað um 1,8 sinnum oftar á netinu en á degi einhleypra 2025 og deginum á undan samanlagt.

Verslað nærri tífalt oftar á netinu

Á degi einhleypra var verslað 9,5 sinnum oftar í netverslunum en á venjulegum miðvikudegi, og um sjö sinnum fleiri kort voru notuð en venjulega.

Verslað nærri tífalt oftar á netinu á degi einhleypra og nærri fjórfalt oftar daginn áður

Netkaup í verslunum, vísitala: venjulegur dagur = 100

Þróunin hefur verið sú að netverslanir byrja að bjóða upp á afslætti jafnvel einhverjum dögum fyrir daginn sjálfan og við sjáum það sannarlega í gögnunum líka. Sunnudaginn 8. nóvember var verslað um 40% oftar á netinu en á venjulegum degi, mánudaginn 9. nóvember nærri tvöfalt oftar og þriðjudaginn 10. nóvember nærri fjórfalt oftar. Daginn eftir dag einhleypra, 12. nóvember, voru kaupin enn um 60% fleiri en á venjulegum degi.

Verslað í sófanum

Dagur einhleypra fer á flug þegar líður á kvöldið. Mest var verslað milli kl. 22 og 23, og nærri 40% af kaupum dagsins voru gerð eftir kl. 20.

Mest var verslað milli kl. 22 og 23, 24 sinnum oftar en á venjulegri klukkustund

Netkaup í verslunum eftir klukkustundum, 11. nóvember 2026. Vísitala: meðalklukkustund á venjulegum miðvikudegi = 100

  • Byrjað á miðnætti: fyrstu fimm mínútur dagsins voru kaupin fleiri en alla fyrstu klukkustund sólarhringsins á venjulegum miðvikudegi.

  • Fram á síðustu mínútu: annasamasta mínúta dagsins var 23:59, jöfn mínútunni 21:32. Kaupendur nýttu tilboðin fram á síðustu stundu.

  • Kvöldið sker sig úr: á venjulegum degi er mest verslað á netinu í hádeginu. Á degi einhleypra var verslað um 30 sinnum oftar milli kl. 23 og miðnættis en á sama tíma á venjulegum degi.

  • Þótt umferðarteppa hafi myndast síðdegis hægði ekkert á netversluninni: milli kl. 15:30 og 18 var hún jafn kröftug og á sama tíma í fyrra.

Fleiri netverslanir, minni karfa

Kaupendur versluðu hjá fleiri netverslunum: nærri fjórðungur kortanna var notaður hjá tveimur eða fleiri netverslunum, en meðalupphæð hverrar körfu var lægri en á venjulegum degi.

  • Búðarráp á netinu: Með 23% kortanna sem notuð voru á degi einhleypra var verslað hjá fleiri en einni netverslun, borið saman við um 5% á venjulegum degi. Um 7,5% kortanna keyptu hjá þremur eða fleiri.

  • Minni karfa: meðalupphæð kaupa var um 23% lægri en á venjulegum degi, en meira en helmingur þess skýrist af því að verslanir með ódýrari vörur seldu mest. Innan sömu verslana var meðalupphæðin um 10% lægri, sem getur endurspeglað afslætti, ódýrari vörur eða hvort tveggja. Sama mynstur sást á degi einhleypra í fyrra.

  • Síminn á lofti: 40% af kaupum dagsins voru greidd með símaveski, Apple Pay eða Google Pay.

Ná áhrifin út fyrir smásöluna?

Við sjáum áhrif þessa dags fyrst og fremst í smásöluverslun, en veitingastaðir hafa einnig byrjað að selja gjafabréf með afslætti og þar með náð að nýta sér vinsældir 11.11 að einhverju leyti.

  • Gjafabréf á veitingastöðum: kaup hjá veitingastöðum á netinu voru þrefalt fleiri en á venjulegum degi, en heildarupphæð kaupanna nærri sjöföld. Fólk var að versla gjafabréf – og það verslaði fyrir talsvert hærri upphæð en vanalega.

  • Ferðaþjónustan: kaup í ferðaþjónustu á netinu voru aðeins um 17% fleiri en á venjulegum degi.

Fastur liður sem vex jafnt og þétt

Vöxturinn skýrist ekki eingöngu af almennum vexti netverslana. Hjá sömu verslunum fjölgaði kaupum á venjulegum dögum um 13% milli ára, en um fimmtung á degi einhleypra. Dagurinn vex því hraðar en netverslun almennt og er orðinn fastur liður í íslenskri netverslun, sem kemur líklega engum á óvart.

Heldur dagurinn krúnunni?

Framundan eru svarti föstudagurinn 27. nóvember og netmánudagurinn 30. nóvember. Í fyrra skiluðu þeir dagar samanlagt fleiri kaupum en dagur einhleypra, en enginn einn dagur náði honum. Teya mun fylgjast með því hvort dagur einhleypra haldi krúnunni árið 2026.

Um gögnin

  • Gögnin ná til netgreiðslna með kortum hjá verslunum og fyrirtækjum í viðskiptum við Teya. Þau sýna því hreyfingar hjá viðskiptavinum Teya en ekki allan íslenska markaðinn.

  • Verslanir eru fyrirtæki í smásölu, t.d. fatnaði, heimilisvörum, snyrtivörum, leikföngum og raftækjum. Matvöruverslanir, veitingastaðir, eldsneyti og áfengi eru ekki talin með.

  • Venjulegur dagur er meðaltal átta sömu vikudaga á undan degi einhleypra: miðvikudagarnir 16. september til 4. nóvember 2026 og þriðjudagarnir 16. september til 4. nóvember 2025.

  • Samanburður milli ára nær aðeins til verslana sem seldu á netinu í gegnum Teya bæði árin. Þannig hafa nýir viðskiptavinir Teya ekki áhrif á samanburðinn.

  • Áskriftir og aðrar endurteknar greiðslur, símapantanir og bakfærðar greiðslur eru ekki taldar með.

  • Fjöldi korta er ekki sá sami og fjöldi fólks: símaveski fá eigið númer og margir eiga fleiri en eitt kort.

  • Allar tölur eru birtar sem hlutföll eða vísitölur.

Ready to get started with Teya today?

Team Teya

•

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)