Products

Partners

Pricing

Help

Categories

//

Nýtt frá Teya - 13.02.2026

by

Teya Iceland

Greiðslubeiðnir á þjónustuvefnum

Þjónustuvefurinn er í stöðugri þróun og nú hafa greiðslubeiðnirnar verið betrumbættar til muna:

Undir Sala → Greiðslubeiðnir má sjá yfirlit yfir allar greiðslubeiðnir, stöðuna á þeim, gildistíma og fleira.

  • Þegar ný greiðslubeiðni er stofnuð er hægt að skrifa tilvísun sem er einnig birt á yfirlitinu yfir greiðslubeiðnir.

  • Gildistíma beiðna er hægt að stilla og breyta, jafnvel eftir að þær hafa verið stofnaðar.

  • Hægt er að bæta við vörulínum, sem sjást á greiðslusíðunni hjá viðskiptavini.

  • Hægt er að velja tungumál greiðslubeiðninnar áður en hún er send.

Þú getur einnig sent greiðslubeiðnir úr Teya appinu og posunum okkar - við hvetjum þig til að prófa!

Nýjungar í posunum okkar

Til að gera posana okkar enn skilvirkari kynnum við þrjár nýjungar:

  • Nú er hægt að stilla þrjár flýtiupphæðir á heimaskjánum til að flýta fyrir sölu þegar sömu upphæðir eru oft notaðar yfir daginn. Einnig hægt að endurtaka síðustu upphæð, einkar gagnlegt þegar skipta á reikningi milli viðskiptavina

  • Á heimaskjánum er einnig búið að bæta við flýtileiðum. Hægt er að stilla hvaða möguleikum er kveikt á, en eftirfarandi möguleikar eru í boði fyrir flýtileiðir:

    • Greiðslubeiðnir

    • Skipta reikningi

    • Heimild (Pre-Auth)

  • Með nýjustu uppfærslu Teya posans er myntval (Dynamic Currency Conversion) sjálfkrafa virkt, sem býður viðskiptavinum þínum að greiða í sínum eigin gjaldmiðli. Uppfærslan verður þann xxxxxxx og hér eru nánari upplýsingar um þjónustuna.

Notaðu appið til að heyra í okkur

Í appinu, undir Meira, getur þú smellt á Spjallaðu við okkur og þá færðu samband við netspjallið okkar. Við viljum líka minna á að appið er í boði á fjölda tungumála. Til að breyta tungumáli smellir þú á ⚙️, ferð í Stillingar og breytir þar tungumálinu. Við mælum að sjálfsögðu með að hafa stillt á okkar ástkæra og ylhýra tungumál, íslensku.

Í því skyni að auka öryggi appsins þarf PIN númer nú að vera sex tölustafir í staðinn fyrir fjórir.

Við vonum að þessar nýjungar komi þér og þínum rekstri vel. Sem fyrr viljum við endilega heyra frá þér ef þú hefur spurningar eða athugasemdir. Gaman er að segja frá því að á meðal nýjunga sem við höfum gefið út eru margar til komnar vegna endurgjafar frá viðskiptavinum okkar. Til dæmis:

  • Skipta reikningi í posa og endurtaka síðustu upphæð - að geta deilt heildarupphæð með fjölda greiðenda og endurtekið svo sömu upphæð og var rukkuð síðast.

  • Tilvísanir, gildistími og tungumál greiðslubeiðna - nú er hægt að stilla allt þetta og margt fleira á þjónustuvefnum.

  • Tap to Pay í símanum - að það sé hægt að nota símann eins og posa með Teya appinu.

  • Fela heimilisfang á kvittunum til viðskiptavina - í posanum undir Greiðslustillingar er hægt að virkja þennan valmöguleika svo að aðeins bæjarfélagið sjáist.

  • Aðgangsheimildir og uppgjörsstillingar - hægt er að gera breytingar á þessu tvennu, bæði í appinu og á þjónustuvef.

Þú getur heyrt í okkur á netspjallinu á Teya.is, með tölvupósti á hjalp@teya.is eða í síma 560-1600 - við tökum glöð á móti þér.

Bestu kveðjur,
Teya teymið

Fáðu tilboð í viðskipti

Teya Iceland

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)