
Hvað gerist þegar skemmtiferðaskip leggst að bryggju? Og hvers vegna er svarið ekki það sama alls staðar?
Tölurnar sem skipta máli
55% - Á Ísafirði kemur rúmur helmingur erlendrar kortaveltu sumarsins með skemmtiferðaskipunum.
12x - Gjafavöruverslanir í smærri hafnarbæjum velta tólffalt meira á degi með skip í höfn miðað við venjulegan dag. Meðalgreiðslan er sú sama; körfurnar eru fleiri.
Milli 9 og 11 - Frá níu til ellefu er kortaveltan tvöföld, nær hámarki klukkan tíu, og um fjögur er veltan komin í eðlilegt horf.
+40% - Það sem nágrannabæirnir bæta ofan á hafnarbæinn. Í Grundarfirði fara sjö af hverjum tíu krónum í næsta bæ; Húsavík missti helming skipakomanna og hélt veltunni.

Með þessari samantekt er Teya ekki að taka neina afstöðu til þess hversu mörg skip eigi að koma til landsins. En við sitjum á gögnum sem svara einfaldri spurningu af talsverðri nákvæmni: Hvaða áhrif hafa komur skemmtiferðaskipa á atvinnurekstur í byggðakjörnum á Íslandi þegar skemmtiferðaskipin koma þangað?
Svarið er að það er ekki eins alls staðar, þótt samnefnarinn sé vissulega heilt yfir að þau séu mikilvæg. Á Ísafirði eru skipin ráðandi þáttur í því hvernig sumarið spilast. Í Vestmannaeyjum, á Seyðisfirði og í Grundarfirði skipta þau verulegu máli, á Akureyri nokkru, en á Húsavík og Djúpavogi eru áhrifin lítil. Og það sem skilur á milli er stærð skipanna miðað við bæinn og hvert farþegarnir fara þegar þeir stíga á land.
Hvernig þetta var mælt
Allar tölur hér eru kortavelta í posa með erlendum greiðslukortum hjá söluaðilum Teya á tímabilinu 20. apríl til 16. september 2026, hér eftir kallað sumarið til einföldunar. Gagnasafnið nær yfir meira en 1.900 skipakomur í tólf höfnum sumrin 2025 og 2026. Niðurstöður eru sýndar fyrir þær átta hafnir þar sem söluaðilar Teya eru nógu margir til að mælingin sé marktæk.
Aðferðin er einföld í grunninn. Skipadagar í hverri höfn eru bornir saman við sömu vikudaga sama sumar þegar ekkert skip var í höfn. Sömu söluaðilar eru þannig bornir saman við sjálfa sig: átta mismunandi hafnir, tvö sumur, hver einasta kortafærsla. Það er sá samanburður sem gerir okkur kleift að greina á milli þess sem kemur með skipunum og þess sem hefði orðið til hvort sem er.
Tvennt þarf að hafa í huga. Tölurnar eru per kort, ekki per einstakling. Par sem deilir korti telur einu sinni. Og kortavelta í posa nær ekki yfir heildaráhrif skemmtiferðaskipa á hagkerfið. Til dæmis er reiðufé, allt sem keypt er um borð og skoðunarferðir sem skipin selja sjálf fyrir utan þau gögn sem voru skoðuð.
Ísafjörður - þar sem skipin eru meira en hálft sumarið
Sumarið 2026 lá skemmtiferðaskip við Ísafjörð um sex daga af hverjum tíu. Í júlí voru aðeins fjórir dagar án skips í höfn.
55% af erlendri kortaveltu sumarsins á Ísafirði væri ekki þar ef skipin kæmu ekki. Það er aukningin umfram það sem sömu söluaðilar selja á sambærilegum dögum án skips - sumarið 2025 var hlutfallið 64%.
Á skipadegi eru um 328 mismunandi erlend kort notuð í posum á Ísafirði. Á degi án skips eru þau 63. Meðalgreiðslan er nánast sú sama, um 4.900 krónur. Farþegarnir kaupa ekki öðruvísi en aðrir ferðamenn - þeir eru bara fimm sinnum fleiri.
Og þeir kaupa annað. Í smærri höfnunum samanlagt eru veitingar stærsti liðurinn í aukningunni; á Ísafirði eru það afþreying og ferðir, sem eru 46% af erlendri kortaveltu bæjarins og aukast um 143% á skipadögum.
Fjölmennasti dagurinn var ekki sá arðbærasti. Þann 12. júní komu 7.140 farþegar með tveimur stórum skipum og skildu eftir rúmlega 500 krónur per farþega. Þann 14. ágúst komu 2.876 með minni skipum og skildu eftir um 1.450 krónur per farþega - nærri þrefalt meira frá innan við helmingi fólksins. Kortin sýna hvers vegna: í júní voru bresk kort 42% af veltunni, í ágúst voru bandarísk kort 52%, og bandarískt kort skilur eftir sig um 6.300 krónur á móti 4.400 hjá bresku. Hvaða skip kemur skiptir jafnmiklu eða meira máli en hversu margir eru um borð.
Áhrifin ná einnig til nágrannabæjanna - Bolungarvíkur, Súðavíkur, Flateyrar, Suðureyrar og Þingeyrar - þar sem erlend kortavelta eykst um 52% á skipadögum Ísafjarðar.
Sjö hafnir; sjö mismunandi niðurstöður
Ísafjörður er þó undantekningin fremur en reglan. Í hinum höfnunum sex er hlutur skipanna í erlendri kortaveltu sumarsins minni - og sums staðar mun minni. Alls staðar gildir það sama: hlutur skipadaga af veltunni er ein tala, það sem raunverulega kemur með skipunum er önnur.


Vestmannaeyjar, Seyðisfjörður og Grundarfjörður eru hafnir þar sem skipin skipta klárlega máli: á bilinu 15–18% erlendrar kortaveltu kemur með þeim. Akureyri, þar sem talan er 11%, er stærsti bærinn í hópnum og þar týnast skipin að hluta í annarri ferðaþjónustu. Á Húsavík og í Djúpavogi er hluturinn undir tíu prósentum.
Djúpivogur er athyglisvert dæmi. Hvergi er hlutfall farþega af íbúum hærra, en hlutur skipanna í kortaveltunni er samt sá lægsti af höfnunum sjö. Stærðarhlutfallið eitt og sér segir ekki söguna.
Taflan sýnir allt sumarið. Það má líka horfa á einn dag: hvað gerist í bænum daginn sem skip er í höfn? Þá er svarið að skipadagur lyftir erlendri kortaveltu um 15–45% í höfnunum sex - mest í Grundarfirði, minnst á Húsavík - og margfalt meira en það á Ísafirði. Hvort einn stór dagur verður svo að stórum hluta sumarsins ræðst af því hversu oft hann kemur. Í Grundarfirði er skipadagurinn stór en aðeins annar hver dagur er skipadagur, og niðurstaðan er 15%. Á Ísafirði er skipadagurinn stór, mjög margir dagar eru skipadagar og niðurstaðan er 55%.
Skipadagur, klukkustund fyrir klukkustund
Í smærri höfnunum sex - Ísafirði, Grundarfirði, Djúpavogi, Húsavík, Seyðisfirði og Vestmannaeyjum - má lesa dagskrá farþeganna nokkurn veginn beint úr posunum.

Frá níu til ellefu að morgni er kortaveltan um það bil tvöföld á við venjulegan dag. Kortaveltan nær hámarki klukkan tíu, 133% yfir venjulegum degi: skipið er tiltölulega nýbúið að leggjast að, farþegarnir streyma í land og fyrsta kaffihúsið og fyrsta gjafavöruverslunin fá mest alla traffíkina. Um hádegi og fram á miðjan dag hægir á - veltan er þá 38% yfir venjulegum degi - og milli fjögur og sex síðdegis er bærinn kominn í eðlilega kortaveltu því þá eru farþegarnir ýmist komnir um borð eða á leiðinni þangað. Á kvöldin, þegar skip liggja yfir nótt, tekur veltan aftur við sér og er 42% yfir venjulegu kvöldi.
Skip sem liggja yfir nótt virðast skila 30–40% meira á hvern farþega en skip sem sigla samdægurs. Sú tala er vísbending þar sem næturstoppin eru fá, en gögnin benda engu að síður í þessa átt.
Sama karfa, en fleiri körfur
Hvað er svo keypt? Í smærri höfnunum sex lendir aukningin á skipadögum svona:

Verslun - gallerí, gjafavara, handverk og almenn verslun - tekur 37% af aukningunni. Veitingar 31%. Afþreying og ferðir keyptar á staðnum 29%. Annað 3%.
Gjafavöruverslanir skera sig úr: á skipadegi er velta þeirra um tólfföld miðað við venjulegan dag.
Það sem breytist ekki er meðalgreiðslan. Farþegi af skemmtiferðaskipi borgar að meðaltali það sama og hver annar ferðamaður í sömu búð. Skipin skila því ekki dýrari kaupum heldur fleiri: sama karfa, fleiri körfur.
Hvaðan koma þessir ferðamenn?
Bandarísk kort skila 56% af aukningunni í smærri höfnunum sex. Bandarísk kortavelta eykst um 69% á skipadegi, bresk um 132% og áströlsk um 118%. Á hinum endanum eru til dæmis Svisslendingar og Tékkar sem hreyfast ekkert.

Per kort eru Bandaríkjamenn og Frakkar með hæstu meðalgreiðsluna, eða um 6.300 og 6.400 krónur, Bretar um 4.400 krónur og Þjóðverjar um 3.400 krónur.
Hér sést líka hversu vel kortaveltan endurspeglar það sem raunverulega er að gerast í höfninni. Þegar skip sem er markaðssett í Þýskalandi liggur við höfn á Ísafirði eru þýsk kort um helmingur af allri erlendri kortaveltu bæjarins þann dag. Þegar bandarískt skip kemur eru bandarísk kort tveir þriðju af allri erlendri kortaveltu bæjarins þann dag.
Annað sem við sáum í gögnunum: Áhafnir skemmtiferðaskipa eru mjög alþjóðlegar, en stór hluti þeirra kemur meðal annars frá Filippseyjum, Indónesíu og Indlandi. Kort frá þessum löndum rúmlega tvöfölduðu daglega veltu sína á skipadögum. Þetta eru um tvö þúsund kort yfir sumarið og meira en helmingur veltunnar fer í kaffihús og veitingastaði.
Þrjár tegundir skipa
Skemmtiferðaskip eru ekki öll eins og við sjáum mun á kortaveltunni miðað við hvers konar skip er í höfninni. Við skiptum skipunum í þrjá flokka: leiðangursskip (um 250 farþegar), minni skemmtiferðaskip (um 800 farþegar) og stór skemmtiferðaskip (2.500–3.500 farþegar).


Farþegi af leiðangursskipi eyðir 2,5x meira í landi en farþegi af stóru skipi. Stóra skipið skilar hins vegar fjórfalt meiri aukningu miðað við leiðangursskipið, einfaldlega af því að farþegarnir eru allavega tíu sinnum fleiri.
Hafnarbærinn sér ekki bara muninn
Hingað til hafa tölurnar verið um hafnarbæina sjálfa. En farþegarnir stoppa ekki bara þar.

Í Grundarfirði lendir 70% af aukningunni á skipadögum utan bæjarins: í Stykkishólmi, Ólafsvík og annars staðar á Snæfellsnesi. Á Húsavík er 33% aukningarinnar í nágrannabæjum, á Ísafirði 30%, á Akureyri 22%, á Seyðisfirði 19% og á Djúpavogi 14%. Ef aðeins væri horft á áhrifin á hafnarbæinn sjálfan væri verið að vanmeta áhrifin sem skipafarþegar hafa um 40%.
Húsavík sýnir hvað best hvers vegna stærra svæði er mögulega betri mælieining en bara hafnarbærinn. Skipakomum til Húsavíkur fækkaði úr 58 sumarið 2025 í 25 sumarið 2026. Þrátt fyrir það jókst kortavelta hjá sömu söluaðilum um 4% á milli sumra. Það sem við sjáum er að stærstur hluti þeirra skipafarþega sem versla á Húsavík lögðust að bryggju á Akureyri.
Ferðalag eins farþega
Kort sem við sjáum í hafnarbæ á skipadegi má fylgja eftir um allt land, á undan og eftir, þar sem flestir nota kortið sitt á öllum þessum mismunandi stöðum. Þannig getum við nokkurn veginn séð ferðalagið í heild sinni.
Meðalkortið eyðir um 60.000 krónum í posa hjá söluaðilum Teya yfir alla Íslandsdvölina. Það er athyglisvert að kort sem koma af misstórum skipum lenda á nánast sömu tölu.
Skiptingin er hins vegar ólík:

Höfuðborgarsvæðið fær stærstan hluta veltunnar í báðum tilfellum. Reykjavík er skiptihöfn þar sem farþegar byrja og enda ferðina og gista oft 1–2 nætur öðru hvoru megin við ferðalagið með skipinu. Farþegar minni skipanna skilja hlutfallslega meira eftir í smærri höfnunum og landsbyggðinni.
Ferðalagið byrjar reyndar áður en komið er til landsins. Af þeim skipafarþegum sem við gátum greint hafði um þriðjungur líka keypt eitthvað á netinu af íslenskum fyrirtækjum og einn af hverjum sjö bókaði ferð eða afþreyingu beint hjá íslensku fyrirtæki - að jafnaði um tveimur mánuðum fyrir komu.
Skipafarþeginn borinn saman við ferðamanninn sem keyrir
Skilur farþegi sem ferðast um landið með skemmtiferðaskipi minna eftir sig en ferðamaður sem ferðast á eigin vegum? Til að svara því bárum við saman kortaveltu hjá bandarískum skipafarþegum í nokkrum bæjum annars vegar og bandarískum ferðamönnum sem heimsóttu sömu bæi án þess að skip væri í höfn hins vegar.

Í þessum sex hafnarbæjum eyðir skipafarþeginn 14.400 krónum á hvert kort og hinn ferðamaðurinn um 12.100 krónum. Skipafarþeginn skilur sem sagt um fimmtungi meira eftir í bænum - og gerir það á nokkrum klukkustundum í landi, á meðan hinn er á ferðinni í nokkra daga.
Yfir landið eyðir venjulegi ferðamaðurinn meiru, um 106.000 krónur í posa á móti 58.000 hjá skipafarþeganum. Stór hluti af því eru hins vegar hlutir sem skipafarþeginn þarf ekki að kaupa: gisting, bílaleigubíll, eldsneyti, og mun fleiri máltíðir. Ef þessu er haldið utan við stendur eftir það sem báðir aðilar velja að kaupa - og þar snýst dæmið við: skipafarþeginn eyðir um 22.000 krónum í verslun og afþreyingu á móti tæpum 17.000 krónum hjá venjulega ferðamanninum.
Heimamönnum er ekki ýtt til hliðar
Einhverjir kunna að hafa áhyggjur af því að heimafólk haldi sig heima þegar skemmtiferðaskipin eru í bæjunum og að kortavelta þeirra þar af leiðandi minnki. Kortaveltan segir hins vegar aðra sögu. Á skipadögum eykst innlend kortavelta í sex af sjö höfnum eða stendur í stað: á Djúpavogi +23%, á Seyðisfirði +21%, á Ísafirði +12%, í Grundarfirði +9%, á Akureyri −2% og á Húsavík −1%. Undantekningin eru Vestmannaeyjar, þar sem innlend kortavelta dregst saman um 11% á skipadögum.
Áhrifin eru ekki þau sömu alls staðar - og það er kjarni málsins
Ef það er eitthvað eitt sem á að sitja eftir er það þetta: skemmtiferðaskip eru ekki af einni stærð, og allt Ísland er ekki ein og sama höfnin. Það er að segja sama skipið, með sömu farþegunum, er allt að því ósýnilegt í Reykjavík en helmingur sumarsins á Ísafirði. Í Grundarfirði fara sjö af hverjum tíu krónum sem skipið skilar í næsta bæ áður en farþegarnir eru komnir aftur um borð. Á Húsavík versla þeir án þess að skipið hafi nokkru sinni lagst þar að. Þetta eru ekki sjö misvísandi niðurstöður heldur sjö svör við sömu spurningu, og þau eru öll rétt, því munurinn liggur ekki í skipinu heldur í bænum: hversu stór hann er miðað við skipið og hvert farþegarnir fara þegar þeir stíga í land.
Við svörum því ekki umræðunni um skemmtiferðaskip með einu svari fyrir landið allt.
Um gögnin: Greiningin nær til heimilaðra sölufærslna erlendra greiðslukorta í posa hjá söluaðilum Teya í átta hafnarbæjum á tímabilinu 20. apríl til 16. september 2026, í samanburði við sömu vikudaga sama tímabil þegar ekkert skip var í höfn. Niðurstöður sumarsins 2025 sýna sömu mynd. Skipakomur eru fengnar úr gögnum hafnanna sjálfra; farþegafjöldi úr áætlunum hafnanna eða skráðum farþegafjölda skipa þar sem áætlanir liggja ekki fyrir; íbúafjöldi frá Hagstofu Íslands 2026. Klukkustundagreiningin byggir á þeim hluta færslna þar sem tími dags liggur fyrir í gögnunum. Allar fjárhæðir eru á hvert kort eða hvern farþega og allar aðrar tölur eru hlutföll; engar tölur einstakra fyrirtækja, skipa eða skipafélaga koma fram. Fjöldi korta er ekki fjöldi einstaklinga. Kortavelta í posa nær ekki til reiðufés, kaupa um borð eða skoðunarferða sem skipafélögin selja sjálf.
Þessi grein er hluti af röðinni Teya í tölum, þar sem við skoðum íslenskt atvinnulíf og mannlíf í gegnum kortaveltuna.
Teya Team
•
