Products

Partners

Pricing

Help

Categories

//

Teya og Götubitinn í samstarf

Teya og Götubitinn í samstarf

Teya og Götubitinn í samstarf

by

Teya Iceland

Teya og Götubitinn, eða Reykjavik Streetfood, hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að Teya verður lykilsamstarfsaðili Götubitans og mun þjónusta alla söluaðila á Götubitahátíðinni með greiðslulausnir. Þá mun Teya einnig koma inn sem sérstakur styrktaraðili, meðal annars í formi ferðastyrks til sigurvegara Götubitahátíðarinnar á næsta ári til að taka þátt í European Street Food Awards.

Samstarfið markar því nýjan áfanga í uppbyggingu minni veitingasöluaðila í íslensku samfélagi og styður við þá vegferð Götubitans að efla minni veitingasöluaðila og Götubitahátíðina sem hefur verið í miklum vexti, en um 100.000 manns lögðu leið sína þangað á liðnu ári.

Með tilkomu samstarfsins munu allir söluaðilar Götubitans koma til með að notast við greiðslulausnir Teya á viðburði Götubitahátíðarinnar á komandi ári, sem mun auðvelda samræmi á hátíðinni, hraða afgreiðslu og bæta upplifun gesta í öllum matarvögnum á vegum Götubitans á viðburðinum.

Yfir 100.000 gestir á Götubitahátíðinni

Róbert Aron Magnússon, eigandi Götubitans og Götubitahátíðarinnar, segir samstarfið marka tímamót og viðurkennir að hafa orðið hissa þegar fyrst var haft samband: „Það er einfaldlega ekki á hverjum degi sem fyrirtæki af þeirri stærðargráðu sem Teya er á alþjóðlegum vettvangi hefur samband. Að mínu mati er það skýr staðfesting á því að við höfum verið að gera margt rétt í uppbyggingu Götubithátíðarinnar í gegnum árin,“ segir Róbert.

Lífið í hnotskurn þegar götubitinn er annars vegar. Ljósmynd/Jón Ragnar Jónsson

„Við höfum byggt Götubitahátíðina upp frá grunni frá árinu 2019 og séð hana vaxa úr 15.000 gestum í yfir 100.000. Þetta samstarf gerir okkur kleift að styðja íslenska þátttakendur mun betur og í fyrsta sinn skapa raunhæfan aðgang að evrópsku keppninni. Hingað til hefur kostnaður verið helsta hindrunin, en það breytist núna.“

Götubitahátíðin hefur á örfáum árum orðið stærsti matarviðburður á Íslandi en á síðustu hátíð mættu um 100.000 manns og talið er að fjöldinn muni aukast enn frekar á næsta ári. Markmið hátíðarinnar er að sameina fjölbreytta söluaðila, skapa lifandi götubitamenningu og kynna íslenskan götubita á alþjóðavettvangi. Fjöldi nýrra aðila hefur bæst í hópinn, en í ár tóku tugir matarvagna þátt. Þá sér Götubitinn einnig um veisluþjónustu og hægt er að panta matarvagna fyrir ýmsa viðburði.

Markmið Götubitahátíðarinnar er að sameina fjölbreytta söluaðila, skapa lifandi götubitamenningu og kynna íslenskan götubita á alþjóðavettvangi. Ljósmynd/Aðsend

Í takt við markmið fyrirtækisins

Teya segir samstarfið við Götubitann í takt við markmið fyrirtækisins að hjálpa til við að styrkja rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi.

„Mér finnst alveg stórkostlegt hvað Götubitahátíðin hefur náð að byggja upp á örfáum árum. Hún hefur orðið að lykilviðburði í Reykjavík og fyrir íslenskt samfélag, þar sem tugþúsundir manna koma saman á einni helgi. Fyrir okkur hjá Teya er þetta líka skemmtilegt tækifæri til að sjá marga af okkar viðskiptavinum í sínu rétta umhverfi og njóta hátíðarinnar með fjölskyldu og vinum. Það að styðja við samfélagið er stór hluti af okkar starfsháttum, og svona viðburðir gera okkur kleift að hitta bæði fyrirtækin sem við vinnum með og fólkið sem sækir viðburðinn,“ segir Brian Gross, forstjóri Teya.

„Hlutverk okkar er að gera greiðslur einfaldar og þægilegar, hvort sem um ræðir lítinn matarvagn eða stærra fyrirtæki. Við viljum leggja okkar af mörkum til að hátíðin vaxi og dafni áfram. Okkur finnst mikilvægt að fólk geti keypt af sínum uppáhalds söluaðilum, stutt við nærumhverfið og verið stolt af þeirri miklu sköpun og metnaði sem birtist í íslenskri götubitamenningu. Við hlökkum því mikið til áframhaldandi samstarfs og að taka þátt í að þróa og efla hátíðina á komandi árum,“ bætir hann við.

Ready to get started with Teya today?

Teya Iceland

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)