Categories

//

Verslunarmannahelgin sem sló öll met á Akureyri

by

Teya Team

Bæjarhátíðin Ein með öllu á Akureyri er fjölsótt og gestir sækja hana heim víðs vegar af landinu. Fjölskyldur og vinahópar streyma í bæinn, tjaldsvæðin fyllast og bærinn iðar af lífi frá morgni og langt fram eftir nóttu. Hátíðin hefur fyrir löngu unnið sér sess sem ein stærsta bæjarhátíð landsins - en hversu stór er hún raunverulega og hvaða áhrif hefur hún á bæinn? Og hvernig var hátíðin í ár í samanburði við venjulega helgi á Akureyri eða fyrri ár?

Við hjá Teya þjónustum stóran hluta verslunar og þjónustu á Akureyri með miklu stolti og getum þar af leiðandi séð bæinn frá óvenjulegu sjónarhorni: í gegnum kortaveltu. Nú þegar helgin er afstaðin lá beinast við að kafa í gögnin og sjá hver efnahagsleg áhrif voru raunverulega.

Bærinn allt að því tvöfaldaðist

Miðað við venjulega helgi í júlí fjölgaði innlendum kortafærslum á Akureyri um 95% um verslunarmannahelgina, og kortaveltan jókst um 68%. Sunnudagurinn var hlutfallslega stærsti dagur helgarinnar, eða þrefalt stærri en venjulegur sunnudagur.

10% aukning í innlendum kortafærslum

Kortin segja líka sögur af sjálfu fólkinu. Fjöldi „nýrra“ korta í bænum - korta sem sem ekki höfðu sést á Akureyri síðustu átta vikurnar á undan - jókst um 91% miðað við venjulega helgi. Hvert kort var að jafnaði notað 2,9 sinnum, sem vanalega er notað 1,9 sinnum á venjulegum degi. Þá jókst velta íslenskra korta í bænum: á venjulegri helgi um hásumar er um þriðjungur greiðslukorta sem eru notuð á Akureyri erlend, en um verslunarmannahelgina voru þau fjórðungur. Hlutur innlendra kortafærslna fór úr 77% í 87%.

Mest verslað milli átta og níu um kvöldið

Til að setja þetta allt í samhengi flettum við aftur í tímann í gegnum gögnin okkar varðandi koltaveltu í bænum. Niðurstaðan: tíu annasömustu klukkustundir sem mælst hafa á Akureyri í innlendri kortaveltu í gögnum Teya eru allar frá þessari einu helgi. Toppnum var náð á laugardagskvöldið milli klukkan átta og níu þar sem um 2,5 sinnum fleiri færslur fóru í gegnum kerfið en á besta klukkutímanum fram að verslunarmannahelgi. Besta klukkustund hátíðarinnar í fyrra – sem átti metið þar til nú – kemst ekki lengur á topp tíu listann.

Hitakortið sýnir takt hátíðarinnar vel. Morgnarnir voru rólegir, kvöldin kraftmikil og nætur sem eru vanalega nokkuð rólegar urðu annasamar. Frá miðnætti til fjögur að nóttu til fóru sexfalt fleiri færslur í gegn hverja nótt hátíðarinnar en um venjulega helgi.

Bjór, pulsa og kaffi vinsælast

Verslunarmannahelgin lendir alltaf á þeim tíma þegar flestir landsmenn fá útborgað - skekkir það ekki myndina? Þessa sömu helgi var Innipúkinn haldinn í Reykjavík þar sem innlendar kortafærslur hjá söluaðilum Teya í höfuðborginni jukust um 14% á meðan Akureyri nærri tvöfaldaðist - nærri sjöfaldur vöxtur á við höfuðborgina. Hvernig sem á það er litið var þetta stærsta verslunarmannahelgi Akureyrar sem við getum séð í okkar gögnum frá upphafi.

Arnar Sveinn Geirsson, forstöðumaður viðskiptaupplifunar hjá Teya, segir gögnin vera til marks um vaxandi vinsældir Akureyrar um verslunarmannahelgina: „Það er áhugavert að sjá hvað Akureyrarbær sækir í sig veðrið, en bærinn virðist vera orðinn hjartað í landinu þessa helgi. Það er gaman að rýna í gögnin eftir stóra ferðahelgi sem þessa, og enn skemmtilegra að deila þeim. Við hjá Teya erum gríðarlega stolt af því hvað okkar fyrirtæki skipa stóran sess hjá smásölu- og þjónustuaðilum víðs vegar um landið.”

Um gögnin: Greiningin nær til heimilaðra sölufærslna innlendra greiðslukorta hjá söluaðilum Teya í þéttbýli Akureyrar (póstnúmerum 600 og 603) helgina 31. júlí – 3. ágúst 2026, í samanburði við meðaltal þriggja venjulegra helga í júlí 2026. Metasamanburður klukkustunda nær aftur til ársbyrjunar 2021. Allar tölur eru samtölur yfir hópa söluaðila og birtar sem hlutfallslegar breytingar; engar tölur einstakra fyrirtækja koma fram. Fjöldi korta er ekki fjöldi einstaklinga.

Þessi grein er sú fyrsta í röðinni Teya í tölum, þar sem við skoðum íslenskt atvinnulíf og mannlíf í gegnum kortaveltu.

Ready to get started with Teya today?

Teya Team

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)

4.3 on Trustpilot

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Teya Services Ltd. is registered in England and Wales with the company number 12271069 and the registered address 41 Lothbury, London, United Kingdom, EC2R 7HF. Teya Solutions Ltd. is authorised by the Financial Conduct Authority under the E-Money Regulations 2011 [Reference no. 978181] for the provision of payment services and issuing of electronic money.

United Kingdom (English)