














Hvernig virka Raðgreiðslur Teya?
Þú auðkennir þig með rafrænum skilríkjum, engin fyrirframskráning eða app
Hægt er að dreifa greiðslum í allt að 36 mánuði með kreditkortinu þínu
Fyrsti gjalddagi getur verið allt að tveimur mánuðum fram í tímann
Greiðsla er dregin beint af kreditkorti milli 15. og 26. hvers mánaðar.
Viðskiptavinur getur greitt inn á lánið í gegnum öruggan greiðsluvef. Það kostar ekkert og lækkar heildarvexti.
Kannaðu heimildina þína inn á raðgreiðsluvef Teya þar sem þú getur séð lánin þín, afrit af samningi, eða greitt inn á lán - allt á einum stað.
Algengar spurningar
Hvað get ég dreift láninu í margar greiðslur?
Almennt er hægt að dreifa greiðslum allt frá 2 og upp í 36 mánuði. Lágmarks lánstími ræðst einnig af reglugerð neytendastofu um Árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK).
Hvernig sæki ég um raðgreiðslulán?
Þú sækir um raðgreiðslulán hjá verslunum og þjónustuaðilum sem bjóða upp á þau við kassa eða greiðslusíðu í vefverslun. Það þarf ekki að sækja neitt app eða forskrá sig neins staðar.
Hvað kostar að taka raðgreiðslulán?
Kostnaður og kjör vegna raðgreiðslulána má finna í verðskrá Teya (Verðskrá).
Hvernig fara afborganir fram?
Mánaðarlega er dregið af kreditkortinu þínu, sem þú skráðir á lánið við stofnun þess, á tímabilinu 15.–26. hvers mánaðar fyrir næsta gjalddaga. Ef ekki tekst að skuldfæra kortið kemur greiðsluseðill í heimabanka með næsta ógreidda gjalddaga.
Hvað get ég tekið margar eða háar raðgreiðslur?
Þú getur séð hversu mörg lán og heildarupphæð skuldar inni á raðgreiðsluvef Teya.
Hversu mikið er eftir af láninu mínu?
Með því að skrá þig inn hér með rafrænum skilríkjum getur þú séð allar upplýsingar um lánin þín, eftirstöðvar, mánaðarlegar greiðslur, lánaheimild og afrit af lánasamningum.
Hvernig greiði ég aukalega inn á lánið mitt?
Þú getur greitt upp eða greitt aukalega inn á lánið þitt með korti á raðgreiðsluvefnum okkar.
Hvað geri ég ef ég skipti um kort?
Ef þú þarft að endurnýja eða uppfæra kortaupplýsingarnar á láninu skaltu hafa samband við þjónustuver Teya í síma 560 1600. Ekki senda kortanúmer í tölvupósti eða netspjalli.
Af hverju var umsókninni minni um raðgreiðslulán hafnað?
Algengar ástæður höfnunar:
Lánamörk eru ekki nógu há. Lánaheimild byggist á lánshæfismati hjá Creditinfo. Hægt er að sjá lánamörk og upplýsingar um öll lánin á þinni kennitölu með því að skrá sig inn hér: http://radgreidslur.is/
Ekki er hægt að nota debetkort, fyrirframgreitt kreditkort eða fyrirtækjakort.
Hámarksfjöldi virkra lána er 5, ef því er náð er ekki hægt að stofna nýtt lán.
Kort er útrunnið, rangt öryggisnúmer eða rangar upplýsingar í umsókn.
Lántaki uppfyllir ekki 20 ára aldurstakmark.
Lántaki er ekki með lögheimili á Íslandi.

