
Sumar verslanir verða með tímanum stór hluti af hverfinu sínu og nærliggjandi samfélagi. Með brosi yfir afgreiðsluborðið og persónulegri þjónustu, verða þessar verslanir og fólkið að baki þeim, samofnar daglegu lífi fólks. Kjötborg er ein þessara verslana.
Nú eru eigendurnir, bræðurnir Kristján Aðalbjörn og Gunnar Halldór Jónassynir, að kveðja eftir langan og farsælan rekstur. Með því lýkur ákveðnum kafla í sögu verslunarinnar og hverfisins.
Þar sem allt byrjaði
Kjötborg opnaði árið 1956 í Búðargerði 10 í Reykjavík og var þá fyrst og fremst kjötverslun. Síðar færðist reksturinn að Ásvallagötu 19, þar sem verslunin hóf starfsemi þann 4. júní 1981.
Árið 1956 voru engar kjörbúðir í Reykjavík og rekstarumhverfið því öðruvísi en þekkist í dag. Fyrstu árin í rekstri voru góð og þróaðist verslunin í litla kjörbúð með tímanum.
Frá 1981 til 2026 – allt annar heimur
Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum árum. Stærsti munurinn liggur í stærð verslana. Árið 1981 voru stórverslanir mjög fáar og hverfaverslanir settu svip sinn á borgina.
Í dag er staðan önnur, en litlar hverfisverslanir eru nánast horfnar, stórar keðjur ráða ríkjum og bjóða verð og vöruúrval sem erfitt er að keppa við.
Þess vegna völdu þeir bræður að Kjötborg myndi einbeita sér að því sem þeir gera best; framúrskarandi og persónulegri þjónustu.
Það sem stendur upp úr
Þegar bræðurnir líta yfir farinn veg eru það ekki tölurnar sem koma fyrst upp í hugann, heldur fólkið.
„Það eru viðskiptavinirnir fyrst og fremst og kynnin við þá. Samheldnin og kynnin af heilu fjölskyldunum.“
Margir ættliðir hafa verslað við Kjötborg í gegnum tíðina, og úr þeim samskiptum hefur sprottið dýrmæt vinátta sem hefur haldist árum saman.
Það sem skiptir mestu máli
Fyrir Kjötborg snýst þetta um eitt grundvallaratriði og það er að koma fram við alla viðskiptavini af virðingu og vinsemd, sama hvar einstaklingarnir eru staddir í þjóðfélaginu.
Það er einmitt þessi hugsun sem aðgreinir verslunina frá öðrum. Persónuleg þjónusta og viljinn til að stíga auka skref fyrir hvern og einn. Því ef eitthvað var ekki til, þá var því einfaldlega reddað.
Hvað tekur við?
Nú eru nýir aðilar að taka við húsnæðinu. Samkvæmt fréttum er hópur fólks úr hverfinu að sameinast um reksturinn, og til stendur að opna þar kaffihús og samkomustað. Þannig heldur húsið áfram að vera vettvangur fyrir mannlíf og samveru í hverfinu.
Framtíð verslunar í Reykjavík
Aðspurðir um framtíðina sjá bræðurnir fyrir sér áframhaldandi þróun í átt að stórum keðjum í úthverfum, þar sem fólk þarf að sækja þjónustu á bíl frekar en í nærumhverfi sínu.
En óskin er önnur:
„Ég myndi vilja sjá meiri þjónustu í hverfunum og þannig meira mannlíf fyrir fólkið.“
Því miður telja þeir það ekki raunhæft í ljósi þess hve stórverslanir hafa fest sig í sessi.
Stoltastir af þessu
Þegar bræðurnir líta til baka eru þeir stoltastir af tvennu: að hafa náð að halda úti rekstri svona lengi í krefjandi umhverfi, og að hafa þjónustað viðskiptavini sína af heilum hug. Úr þeirri þjónustu hefur skapast vinátta sem þeir meta meira en nokkuð annað.
Og þegar þeir eru spurðir hvers þeir eigi eftir að sakna mest er svarið einfalt:
„Fólksins!“
Að lokum vildu bræðurnir koma einum skilaboðum á framfæri til viðskiptavina sinna til margra ára og til hverfisins alls:
„Takk fyrir okkur! Við viljum nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem lagt hafa leið sína í verslunina í gegnum árin og áratugina. Stuðningurinn, tryggðin, vináttan og velvildin er það sem hefur haldið okkur gangandi allan þennan tíma.“
Hjá Teya erum við stolt af því að styðja við hetjur samfélagsins og hagkerfisins – fólkið og fyrirtækin sem fylla hverfin okkar og nærliggjandi samfélagi af lífi.
Sögur eins og saga Kjötborgar minna okkur á af hverju við gerum það sem við gerum.





Ready to get started with Teya today?
Teya Iceland
•