Categories

//

Mínútan sem landið stöðvaðist – eða svona næstum því

by

Teya Team

Þann 12. ágúst var fyrsti almyrkvi á sólu yfir Íslandi frá 1954 og það sást svart á hvítu í greiðslugögnum Teya hversu spennt íslenska þjóðin var. Þegar almyrkvinn náði Reykjavík kl. 17:48 sló þögn á nánast alla posa landsins.

−81% færslur kl. 17:48 m.v. venjulegan miðvikudag
−74% meðan alskugginn fór yfir landið (17:43–17:51)
15 mínútur þar til allt var komið í sama farið og venjulega

Dagurinn í heild: undirbúningur, kyrrð, fögnuður

Dagurinn hófst á töluvert fleiri kortafærslum en vanalega, en snemma síðdegis var verslun allt að fjórðungi meiri en á venjulegum miðvikudegi á meðan fólk kláraði innkaupin fyrr en vanalega. Frá klukkan 15 fjaraði jafnt og þétt undan þar til botninum var náð í almyrkvanum sjálfum, og aðeins korteri síðar var landið aftur komið á fullt.

Landið, teiknað úr færslum

Hver depill er GPS-staðsetning posa; stærðin sýnir fjölda færslna. Sjáðu hvernig fólkið færist vestur og hvernig það færir sig svo aftur til baka daginn eftir almyrkvann.

mynd03_gps_hreyfimynd.gif

Fólksflutningarnir vestur

Fjöldi virkra korta eftir landsvæðum, vísitala miðað við miðgildi sama vikudags undanfarnar þrjár vikur. Snæfellsnes byggðist upp í þrjá daga og náði hámarki á almyrkvadaginn í 3,4-földum venjulegum fjölda. Vestfirðir náðu toppnum deginum áður — og landsvæði utan vinsælustu staðanna fyrir almyrkvann drógust saman á meðan.

Traffíkin í höfuðborginni jókst: höfuðborgarsvæðið var 5–29% yfir venjulegu horfi alla vikuna (erlend kort í hámarki 136 á þriðjudag). Á sama tíma fóru svæði utan almyrkvaslóðar niður í vísitölu 73 á almyrkvadaginn: fólk hélt vestur af Norður- og Austurlandi.

Metdagar fyrir vestan

Miðvikudagurinn 12. ágúst er annasamasti dagur á Snæfellsnesi í gögnum Teya - 117% yfir fyrra meti. Og fjórir efstu dagarnir frá upphafi eru nú allir úr almyrkvavikunni.

Hvenær lagði fólk af stað?

Kort sem voru virk á höfuðborgarsvæðinu 1.–8. ágúst: hvenær sást fyrsta færsla þeirra á Snæfellsnesi og Vestfjörðum? Fleiri fóru deginum fyrir almyrkvann - og á almyrkvadaginn streymdi fólk inn á Snæfellsnes alveg fram á lokaklukkustundina fyrir almyrkva.

Gistu eða keyrðu heim?

Innlend kort sem versluðu á Snæfellsnesi eða Vestfjörðum á almyrkvadaginn — hvað gerðu þau svo? Aðeins 12% sáust aftur á höfuðborgarsvæðinu samdægurs – því var að öllum líkindum ekki um dagsferð að ræða hjá flestum sem fóru á vesturlandið.

„Popp-upp“ hagkerfið elti almyrkvann: 18 söluaðilar sem höfðu enga GPS-staðfesta starfsemi á Vesturlandi vikurnar tvær á undan birtust þar 11.–12. ágúst — matarvagnar og „popp-upp“ sölustaðir — og tóku samtals þúsundir færslna á tveimur dögum. Það er Android-posakerfi Teya sem gerir þetta yfirhöfuð mælanlegt.

Almyrkvaferðamennirnir

Færslur erlendra korta á almyrkvaslóðinni á sjálfan daginn, bornar saman við venjulegan miðvikudag. Bandarísk kort báru af með fleiri færslur en hinar níu stærstu þjóðirnar samanlagt.

Veðurspáin benti á Breiðafjörð og Vestfirði. Af kortum sem sáust á Snæfellsnesi 10.–11. ágúst fóru 70% fleiri yfir á Vestfirði á almyrkvadaginn en öfuga leið — í átt að betra skyggni.

Dagurinn eftir: Vesturland hélt í gesti

Ekki var um neina örtröð að ræða og heimferð fólks dreifðist jafnt yfir miðvikudagskvöld og allan fimmtudaginn. Vesturlandið var 50–90% yfir venjulegum fimmtudegi allan daginn: morgunverðarkippur vegna þeirra sem gistu milli 8–10 og líflegt fram á kvöld. Snæfellsnes átti sinn fjórða stærsta dag frá upphafi daginn eftir almyrkvann.

Um gögnin: Greiningin nær til heimilaðra sölufærslna greiðslukorta — innlendra og erlendra — hjá söluaðilum Teya um land allt dagana 8.–13. ágúst 2026, í samanburði við miðgildi sömu vikudaga vikurnar þrjár á undan (15. júlí – 4. ágúst). Mínútugreining sólmyrkvadagsins 12. ágúst er borin saman við þrjá venjulega miðvikudaga og metasamanburður daga nær aftur til ársbyrjunar 2019. Landsvæði byggja á staðsetningu söluaðila og Íslandskortið á GPS-hnitum frá posum Teya; kortið sýnir mynstur fremur en heildartölur. Allar tölur eru samtölur yfir hópa söluaðila og engar tölur einstakra fyrirtækja koma fram. Fjöldi korta er ekki fjöldi einstaklinga. Þessi grein er önnur greinin í röðinni Teya í tölum þar sem við skoðum íslenskt atvinnulíf og mannlíf í gegnum kortaveltu.

Ready to get started with Teya today?

Teya Team

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. I servizi di pagamento di Teya nello Spazio Economico Europeo (SEE) sono forniti da Teya Iceland hf. (numero di registrazione: 440686-1259). Teya Iceland hf. è autorizzata dall’Autorità di Vigilanza Finanziaria della Banca Centrale d’Islanda come istituto di credito.

Italian (Italiano)

Impostazioni dei cookie

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. I servizi di pagamento di Teya nello Spazio Economico Europeo (SEE) sono forniti da Teya Iceland hf. (numero di registrazione: 440686-1259). Teya Iceland hf. è autorizzata dall’Autorità di Vigilanza Finanziaria della Banca Centrale d’Islanda come istituto di credito.

Italian (Italiano)

Impostazioni dei cookie

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. I servizi di pagamento di Teya nello Spazio Economico Europeo (SEE) sono forniti da Teya Iceland hf. (numero di registrazione: 440686-1259). Teya Iceland hf. è autorizzata dall’Autorità di Vigilanza Finanziaria della Banca Centrale d’Islanda come istituto di credito.

Italian (Italiano)

Impostazioni dei cookie