Categories

//

Nýtt frá Teya - 22.05.2026

by

Teya Iceland

Þegar sólin hækkar á lofti gefum við í og styrkjum vöruframboðið okkar og hér eru dæmi um nokkrar vörur sem við höfum unnið að þökk sé endurgjöf frá ykkur. Takk kærlega fyrir að láta okkur vita hvað við gerum vel og hvað við getum gert enn betur.

Nýjungar í netgreiðslum

Við höldum áfram að bæta netlausnir Teya og nú er hægt að sérsníða Hosted Checkout greiðslusíðuna betur en áður. Þar er nú hægt að bæta við eigin logo-i, tenglum á skilmála og persónuverndarstefnu, ásamt skilaboðum til kaupenda sem birtast þá á greiðslusíðunni.

Hægt er að safna nauðsynlegum upplýsingum um kaupanda, svo sem nafni, netfangi og símanúmeri og bjóða upp á stafrænar kvittanir fyrir netgreiðslur. Við leggjum mikla áherslu á áframhaldandi umbætur á Hosted Checkout, en sú greiðslusíða er kjarninn í netgreiðslulausnum Teya og er hún notuð í öðrum netlausnum eins og greiðslubeiðnum og viðbótum fyrir Shopify og WooCommerce. Hún tekur við af eldri greiðslusíðunni okkar, SecurePay, og við hvetjum alla til að uppfæra sem fyrst.

Skoða netgreiðslumöguleika →

Nýir posar á leiðinni

Við erum spennt að segja frá því að ný kynslóð posa er á leiðinni til Íslands.

Markmiðið okkar er að bjóða einfalt úrval góðra posa sem geta stutt vel við ólíkar þarfir mismunandi fyrirtækja. Nýju posarnir keyra á sama Teya viðmóti og núverandi posar, þannig að notkunin verður kunnugleg frá fyrsta degi.

Þeir eru með stærri skjá en forverarnir, betri rafhlöðuendingu og þeir bjóða upp á snertilausar greiðslur beint á skjánum.

Núverandi posar verða áfram studdir en nýju tækin fara í almenna útgáfu í sumar og hlökkum við til að heyra hvernig móttökurnar verða.

Einnig verður bráðum hægt að setja logo á skjáinn á posanum, við vitum að margir notendur hafa beðið lengi eftir þessu og við hlökkum til að segja ykkur betur frá þegar lausnin er komin í loftið.

Skoða posa →

Fyrirfram fjármögnun Teya

Með Fyrirfram fjármögnun Teya geta fyrirtæki fengið aukið svigrúm til að fjárfesta í rekstrinum. Þá veitir Teya þeim fjármögnun í samvinnu við Liberis og endurgreiðslur eru eftir þínu höfði - þú velur prósentuhlutfall sem er dregið af uppgjörinu þínu daglega og þar af leiðandi stýrir þú greiðsluhraðanum.

Lausnin er hugsuð fyrir fyrirtæki sem vilja einfaldari leið til fjármögnunar og meiri fyrirsjáanleika í daglegum rekstri.

Ávinningurinn fyrir notendur felst fyrst og fremst í auknum sveigjanleika. Fyrirtæki geta brugðist hraðar við, gripið tækifæri þegar þau gefast og styrkt sjóðstreymið án þess að flækja reksturinn um of.

Fyrirtæki þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að geta sótt um Fyrirfram fjármögnun Teya og ef skilyrðin eru uppfyllt sendum við tölvupóst um það á prókúruhafa. Einnig er hægt að skoða þetta á þjónustuvefnum okkar, undir Fjármögnun, en þar er líka hægt að sækja um.

Fyrirfram fjármögnun Teya →

Teya Raðgreiðslur
Nýr vefur fyrir Teya Raðgreiðslur

Teya raðgreiðslur eru kortalán sem fyrirtæki geta innleitt hjá sér og þannig boðið viðskiptavinum sínum einfalda og skýra leið til að dreifa greiðslum. Lánamörk eru allt að 1.990.000 kr. og hægt er að dreifa greiðslum í 2-36 mánuði.

Í síðustu viku kynntum við nýja vefsíðu fyrir Teya raðgreiðslur, en með betri framsetningu en á eldri vefnum verður auðveldara fyrir viðskiptavini að átta sig á greiðsluleiðum sínum og klára kaupferlið með öruggum hætti. Sveigjanlegir greiðslumöguleikar geta stutt við betri kaupupplifun viðskiptavina og aukið líkurnar á að þeir klári kaupin. Ef þú hefur áhuga á að bjóða upp á Teya raðgreiðslur hjá þínu fyrirtæki þá geturðu sent okkur línu á netspjallinu eða á hjalp@teya.is og við skoðum málið með þér.

Nýr raðgreiðsluvefur →


Umsögn frá viðskiptavini

Vonandi fannst þér áhugavert að sjá hvað við höfum verið að bauka undanfarið.

Við viljum endilega vera í góðu sambandi við viðskiptavini okkar því hjá þeim fáum við innblástur og frábærar hugmyndir.

Til dæmis hafa eftirfarandi vörur verið þróaðar út frá endurgjöf viðskiptavina okkar:

  • Uppsetning á greiðslusíðu - það er mikilvægt fyrir fólk í rekstri að geta vísað á skilmála og sérsniðið greiðslusíðuna sína.

  • Tilkynningar í tölvupósti - sama hvort um er að ræða greiðslutilkynningu vegna greiðslubeiðni eða yfirlit yfir sölu dagsins eða mánaðarins þá er hægt að stilla það á þjónustuvefnum okkar.

  • Samtala á færsluyfirliti - þegar búið er að velja tímabil til að skoða er fjöldi færslna og heildaupphæð sýnileg efst á síðunni.

  • Flýtiupphæðir - þegar posi er ekki tengdur við kassakerfi er hægt að stilla nokkrar flýtiupphæðir sem sparar hellings tíma þegar sama upphæðin er oft slegin inn.

Ef þú ert með spurningar eða ábendingar getur þú heyrt í okkur á netspjallinu, með tölvupóstiá hjalp@teya.is eða í síma 560-1600 - við tökum glöð á móti þér.

Bestu kveðjur,

Teya teymið

Ready to get started with Teya today?

Teya Iceland

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Platební služby společnosti Teya v Evropském hospodářském prostoru (EHP) poskytuje společnost Teya Iceland hf. (registrační číslo: 440686-1259). Společnost Teya Iceland hf. je oprávněna k činnosti jako úvěrová instituce na základě povolení Úřadu pro finanční dohled při Islandské centrální bance.

Czechia (Čeština)

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Platební služby společnosti Teya v Evropském hospodářském prostoru (EHP) poskytuje společnost Teya Iceland hf. (registrační číslo: 440686-1259). Společnost Teya Iceland hf. je oprávněna k činnosti jako úvěrová instituce na základě povolení Úřadu pro finanční dohled při Islandské centrální bance.

Czechia (Čeština)

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Platební služby společnosti Teya v Evropském hospodářském prostoru (EHP) poskytuje společnost Teya Iceland hf. (registrační číslo: 440686-1259). Společnost Teya Iceland hf. je oprávněna k činnosti jako úvěrová instituce na základě povolení Úřadu pro finanční dohled při Islandské centrální bance.

Czechia (Čeština)