Produtos

Partners

Preços

Ajuda

Categories

//

Endurkröfur – allt sem þú þarft að vita

by

Teya Team

Endurkrafa getur komið upp þegar korthafi telur sig eiga rétt á endurgreiðslu vegna kortafærslu.
Hér finnur þú svör við algengustu spurningum um endurkröfur, hvað þú getur gert til að draga úr þeim og hvernig Teya hjálpar þér í ferlinu.

Hvað er endurkrafa?

Endurkrafa er leið fyrir korthafa til að óska eftir endurgreiðslu á kortafærslu í gegnum bankann sinn.
Ef korthafi telur til dæmis að hann hafi ekki fengið vöru eða þjónustu, hafi verið rukkaður of oft eða að færsla hafi verið óheimil, getur hann óskað eftir endurkröfu.
Beiðni um endurkröfu fer í gegnum banka korthafa og ef hún uppfyllir skilyrði kortaskemans er hún send til kortaskemans sem kemur henni áfram til færsluhirðisins. Færsluhirðirinn, í þessu tilviki Teya, upplýsir síðan seljandann og aðstoðar hann við að bregðast við endurkröfunni.
Til einföldunar má hugsa sér ferlið þannig að korthafi og banki hans séu saman í liði, en seljandi og Teya séu saman í liði. Banki korthafa aðstoðar korthafa við endurkröfuna, en Teya er til staðar til að aðstoða seljandann í málinu, svara spurningum og leiðbeina honum í gegnum ferlið. Kortaskemað er hlutlaus aðili sem setur reglur um ferlið og getur tekið afstöðu til málsins ef aðilar eru ekki sammála um endurkröfuna.

Af hverju er ég að fá endurkröfu?

Korthafi hefur óskað eftir endurgreiðslu vegna kortafærslu hjá þér.
Ástæður geta verið mismunandi, til dæmis:

  • korthafi segist ekki hafa fengið vöru eða þjónustu

  • vara eða þjónusta hafi ekki verið eins og henni var lýst

  • korthafi hafi afbókað samkvæmt skilmálum en ekki fengið endurgreiðslu

  • sama færsla hafi verið rukkuð oftar en einu sinni

  • korthafi kannist ekki við færsluna eða telji kortið hafa verið misnotað

  • röng upphæð hafi verið rukkuð

Í tilkynningu frá Teya kemur fram endurkröfukóðinn og upplýsingar um ástæðu endurkröfunnar.

Hvað á ég að gera þegar ég fæ endurkröfu?

1. Skoðaðu tölvupóstinn frá Teya
Skoðaðu ástæðu endurkröfunnar og hvaða upplýsingar eða gögn óskað er eftir. Þú getur séð yfirlit yfir þær endurkröfur sem berast til þín á þjónustuvefnum. Þar finnur þú einnig upplýsingar um endurkröfuna og ástæðu hennar.
2. Ákveða hvort það eigi að samþykkja eða hafna endurkröfunni. Ef korthafi hefur rétt fyrir sér og á rétt á endurgreiðslu er best að samþykkja endurkröfuna og loka málinu. Ef þú telur að endurkröfunni eigi að hafna skaltu fylgja næstu skrefum.
Ef þú hafnar endurkröfunni:
3. Safnaðu saman gögnum
Finndu þau gögn sem tengjast færslunni og styðja mál þitt.
4. Sendu gögnin til Teya innan tilgreinds frests
Það er mikilvægt að bregðast við innan þess frests sem kemur fram í tilkynningunni. Öll gögn þurfa að vera send í PDF- eða JPEG-sniði og á ensku.
5. Teya fer yfir málið
Ef þú ert óviss getur þú óskað eftir því að við hjálpum þér að meta gögnin og setja saman svar.
6. Málið fer í ferli hjá kortaskema
Gögnin eru send áfram samkvæmt reglum viðkomandi kortaskema. Niðurstaðan getur verið að endurkrafan sé samþykkt eða henni hafnað af korthafa og útgefanda.

Mikilvægt: Það er ekki nóg að senda bara inn gögn. Reyndu að útskýra skýrt hvað gerðist og hvers vegna þú telur að endurkröfunni eigi að hafna.

Hvaða gögn ætti ég að geyma?

Góð gögn geta skipt miklu máli ef þú færð endurkröfu. Hvaða gögn eru mikilvæg fer eftir tegund endurkröfu og hvort færslan var gerð í verslun eða á netinu.

Gögn sem gætu nýst til að mótmæla endurkröfu:

  • undirritun korthafa

  • reikningar og kvittanir

  • samskipti við korthafa

  • bókanir og afbókanir

  • samþykktir skilmálar og afbókunarskilmálar

  • upplýsingar um afhendingu vöru

  • upplýsingar um hvaða vara eða þjónusta var veitt

  • undirritaðir samningar eða önnur gögn sem sýna að korthafi samþykkti viðskiptin

  • undirritaður mætingalisti

Get ég safnað fleiri gögnum fyrir stærri færslur?

Já. Ef seljandi telur ástæðu til getur verið skynsamlegt að safna ítarlegri gögnum þegar um stærri eða verðmætari viðskipti er að ræða.
Til dæmis getur verið gott að hafa undirritaðan samning, staðfestingu á afhendingu eða önnur gögn sem sýna að korthafi hafi samþykkt viðskiptin.
Sterk auðkenning, svo sem 3D Secure, getur hjálpað til við að verja þig gegn endurkröfum þar sem korthafi heldur því fram að færslan sé sviksamleg.

Hvernig get ég dregið úr líkum á endurkröfum?
Ekki er hægt að koma í veg fyrir endurkröfur en þú getur dregið úr líkunum.
Gott er að:

  • hafa skýra skilmála og afbókunarskilmála

  • tryggja að korthafi geti auðveldlega kynnt sér skilmálana og að samþykki á skilmálunum liggi fyrir áður en viðskiptin fara fram

  • bregðast fljótt við beiðnum um endurgreiðslu eða kvörtunum sem berast

  • geyma gögn um viðskipti og samskipti við korthafa eftir því sem við á

  • nota sterka auðkenningu, svo sem 3D Secure, þar sem það á við

Af hverju fæ ég endurkröfu vegna gamallar færslu?

Korthafar hafa ákveðinn tíma til að óska eftir endurkröfu og sá tími getur verið mismunandi eftir tegund endurkröfu og aðstæðum.
Almenna viðmiðið er að hægt sé að gera endurkröfu allt að 120 dögum aftur í tímann, en tímamörk geta verið mismunandi eftir tegund endurkröfu og aðstæðum að hverju sinni.
Til dæmis getur korthafi keypt flugmiða mörgum mánuðum áður en fluginu er aflýst. Í slíku tilviki geta tímamörkin miðast við þann dag sem þjónustan átti að fara fram en ekki kaupdaginn.

Hver er réttur korthafans?
Korthafi getur óskað eftir endurkröfu hjá sínum banka ef hann telur sig eiga rétt á endurgreiðslu. Endurkrafa er þó aðeins beiðni. Hún þýðir ekki að korthafi eigi sjálfkrafa rétt á að fá færsluna endurgreidda.
Þú hefur tvo valkosti þegar reksturinn þinn fær endurkröfu:
1. Hafna endurkröfunni - Það gerir þú ef þú telur að korthafi eigi ekki rétt á endurgreiðslu. Þú sendir okkur póst með þeim gögnum sem beðið er um í tilkynningunni. Þú getur þá sýnt fram á að korthafi eigi ekki rétt á endurgreiðslu, til dæmis með því að sýna fram á að vara eða þjónusta hafi verið veitt, skilmálar hafi verið samþykktir eða færslan hafi verið rétt.
2. Samþykkja endurkröfuna - Það gerir þú ef þú ert sammála því að korthafi eigi rétt á endurgreiðslu. Þá fær korthafi upphæðina endurgreidda í gegnum endurkröfuferlið.
Mikilvægt er að vita að ef endurkrafa hefur verið stofnuð skaltu ekki endurgreiða korthafa sjálf/ur, t.d. með endurgreiðslu í posa eða millifærslu. Þá gæti korthafi fengið upphæðina tvisvar til baka og þú tapað fjármunum tvisvar.

Hver er réttur minn sem seljandi?

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um endurkröfuna og fá tækifæri til að svara henni.
Ef þú telur að endurkröfunni eigi að hafna getur þú sent inn gögn sem styðja mál þitt.
Teya hjálpar þér að undirbúa svarið og tryggja að það sé sent samkvæmt reglum kortaskemans.
Endurkröfuferlið takmarkar ekki lagalegan rétt aðila til að leita réttar síns fyrir dómstólum.

Hvernig vinnur Teya með mér?

Þú ert ekki ein/n í þessu. Við fylgjum þér í gegnum allt ferlið, frá því að endurkrafan berst og þar til niðurstaða liggur fyrir.
Svona gengur ferlið fyrir sig þegar endurkrafa berst:
1. Við látum þig vita. Um leið og endurkrafa berst sendum við þér tölvupóst. Þar kemur fram á hvaða forsendum endurkrafan er gerð og hvaða gögn við þurfum frá þér. Þú getur fylgst með stöðu endurkrafanna á þjónustuvefnum.
2. Þú sendir okkur gögnin sem fram koma í tilkynningu. Ef eitthvað vantar látum við þig vita strax, svo málið verði eins sterkt og hægt er.
3. Við sjáum um svarið. Við undirbúum svarið og sendum það áfram samkvæmt reglum kortaskemanna.
Ef þú hefur spurningar á einhverjum tímapunkti geturðu alltaf haft samband við okkur, við látum þig einnig vita ef þörf er á frekari upplýsingum eða gögnum til að styðja málið.

Af hverju fæ ég strax rukkun fyrir endurkröfu?

Þegar endurkrafa berst frá kortaskema er upphæð hennar skuldfærð af uppgjörinu þínu. Þetta er gert samkvæmt reglum kortaskemanna sem allir færsluhirðar verða að fylgja. Þess má geta að Teya hagnast ekki á endurkröfum.
Skuldfærslan þýðir heldur ekki að korthafi hafi fengið endurgreitt. Fjárhæðin er tekin frá á meðan málið er til meðferðar og niðurstaðan ræður því hvað verður um hana:

  • Ef endurkröfunni er hafnað er fjárhæðin lögð aftur inn á uppgjörið þitt og korthafi fær ekkert endurgreitt.

  • Ef endurkrafan er samþykkt fær korthafi fjárhæðina endurgreidda.

Af hverju þarf ég að greiða 3.000 kr. fyrir endurkröfu?

Færsluhirðir (Teya) greiðir gjald til kortaskemanna fyrir hverja endurkröfu sem berst.
3.000 kr. gjaldið stendur undir þessum kostnaði og er nýtt til að mæta öðrum kostnaði sem tengist vinnslu endurkrafna.

Teya Team

•

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Os serviços de pagamento da Teya no Espaço Económico Europeu (EEE) são fornecidos pela Teya Iceland hf. (número de registo: 440686-1259). A Teya Iceland hf. tem autorização da Autoridade de Supervisão Financeira do Banco Central da Islândia para operar como uma instituição de crédito e do Banco de Portugal para operar em Portugal. Leia mais detalhes sobre a Teya Iceland hf.

Portugal (Português)

Definições de cookies

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Os serviços de pagamento da Teya no Espaço Económico Europeu (EEE) são fornecidos pela Teya Iceland hf. (número de registo: 440686-1259). A Teya Iceland hf. tem autorização da Autoridade de Supervisão Financeira do Banco Central da Islândia para operar como uma instituição de crédito e do Banco de Portugal para operar em Portugal. Leia mais detalhes sobre a Teya Iceland hf.

Portugal (Português)

Definições de cookies

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Os serviços de pagamento da Teya no Espaço Económico Europeu (EEE) são fornecidos pela Teya Iceland hf. (número de registo: 440686-1259). A Teya Iceland hf. tem autorização da Autoridade de Supervisão Financeira do Banco Central da Islândia para operar como uma instituição de crédito e do Banco de Portugal para operar em Portugal. Leia mais detalhes sobre a Teya Iceland hf.

Portugal (Português)

Definições de cookies