Produtos

Partners

Preços

Ajuda

Produtos

Partners

Preços

Ajuda

Categories

//

J-dagurinn í tölum

by

Teya Team

Kortavelta á börum í miðbæ Reykjavíkur var 64% meiri föstudagskvöldið 6. nóvember 2026 en á venjulegu föstudagskvöldi fyrr í haust. Í fyrra var munurinn 74%.

J-dagurinn er orðinn fastur liður í íslensku skemmtanalífi. Fyrsta föstudag í nóvember, klukkan 20:59, fellur jólasnjórinn - jólabjórinn kemur í hús og miðbærinn fyllist. Við skoðuðum kortaveltu í posum Teya í miðbæ Reykjavíkur (póstnúmer 101) bæði árin, 2025 og 2026, og bárum J-daginn saman við aðra föstudaga á sama árstíma.

Niðurstaðan: J-dagurinn var annasamasta föstudagskvöld ársins hingað til á börum í miðbænum og það eru Íslendingar sem bera það uppi. Ef við skoðum fjölda færslna voru Menningarnótt 2025 og 2026 einu dagarnir sem voru stærri en J-dagurinn 2026.

Klukkan 20:59

Bærinn fór að fyllast strax um kvöldmatarleytið, en stökkið kom nánast á slaginu. Í ár var fjöldi færslna kl. 21:15–21:30 tæplega tvöfaldur á við venjulegt föstudagskvöld. Í fyrra var stökkið enn skarpara: á fyrsta korterinu eftir 20:59 fjölgaði færslum um 46% frá korterinu á undan og þær urðu 2,5 sinnum fleiri en á venjulegum föstudegi.

Íslendingarnir bera daginn uppi

Velta á íslensk kort á börum í 101 var 64% meiri en á venjulegum föstudegi í ár og nær tvöfalt meiri í fyrra (+94%). Fjöldi íslenskra korta sem voru notuð á börunum jókst um 55% í ár og 81% í fyrra.

Iceland Airwaves stóð yfir sömu helgi bæði árin, svo við þurftum að aðgreina áhrifin. Tvennt bendir til þess að J-dagurinn skili stærstum hluta aukningarinnar en ekki Airwaves:

  • Velta á erlend kort á börum jókst um 23% á J-daginn í ár, minna en á fimmtudegi hátíðarinnar þegar enginn J-dagur var.

  • Laugardagurinn á Airwaves, þegar enginn J-dagur var, var nokkurn veginn eins og venjulegur laugardagur á börum í 101 bæði árin.

Bjór ofan á kvöldverðinn

Á veitingastöðum í miðbænum breyttist kvöldið meira en heildarveltan gefur til kynna. Til klukkan 21 fjölgaði færslum um 13% í ár, en eftir klukkan 21 fjölgaði þeim um 59%. Aukningin kom því að mestu eftir hefðbundinn kvöldverðartíma, sem gæti gefið til kynna að fólk hafi fyrst og fremst mætt til að fá sér drykk.

Fjöldi reikninga yfir 20.000 krónum var nánast sá sami og á venjulegu föstudagskvöldi. Fólk sleppti því ekki að fara út að borða, en ofan á venjulegt föstudagskvöld hjá veitingastöðum bæjarins bættust margar minni færslur við, svo hlutfall reikninga yfir 20.000 krónum féll úr 10% í 7% og meðalfærslan lækkaði um 16%. Heildarvelta veitingastaðanna jókst um 10%, á meðan barirnir bættu við sig 64%.

Á börunum var það öfugt: hlutfallslega mesta aukningin varð fyrir klukkan 21. Fólk kom sér fyrir snemma til að vera mætt þegar jólabjórinn kom.

Og aukningin kom frá fleira fólki, ekki fleiri umferðum. Hvert kort var notað nánast jafn oft á börunum á J-daginn og á venjulegum föstudegi, að jafnaði um tvisvar yfir kvöldið. Það voru einfaldlega miklu fleiri í bænum.

Aðferð og fyrirvarar

  • Gögn: kortavelta í posum Teya hjá börum og veitingastöðum með póstnúmer 101, kl. 18:00–06:00. Færslur eftir miðnætti teljast til kvöldsins áður. Tímalínan sýnir kl. 17:00–03:00.

  • J-dagar: föstudagurinn 7. nóvember 2025 og föstudagurinn 6. nóvember 2026.

  • Samanburður: 2025 er borið saman við meðaltal sex föstudaga í október og nóvember. 2026 er borið saman við miðgildi fimm föstudaga í október, þar sem einn þeirra (9. október) var óvenju stór. Í tímalínunni og skiptingunni eftir tíma kvölds er notað meðaltal sama tímabils.

  • Röðun kvölda: öll kvöld frá júní 2025, þegar gögnin okkar hefjast, borin saman eftir fjölda færslna á börum í 101.

  • Innlend og erlend kort: greint eftir útgáfulandi korts.

  • Airwaves: hátíðin var 6.–8. nóvember 2025 og 5.–7. nóvember 2026. Áhrif hennar voru metin út frá fimmtudegi og laugardegi hátíðarinnar og út frá erlendum kortum.

  • Fyrirvari: tölurnar ná aðeins til viðskiptavina Teya og sýna hlutfallslegar breytingar, ekki heildarveltu markaðarins.

Ready to get started with Teya today?

Teya Team

•

Copyright © 2026 Teya Services Ltd. Os serviços de pagamento da Teya no Espaço Económico Europeu (EEE) são fornecidos pela Teya Iceland hf. (número de registo: 440686-1259). A Teya Iceland hf. tem autorização da Autoridade de Supervisão Financeira do Banco Central da Islândia para operar como uma instituição de crédito e do Banco de Portugal para operar em Portugal. Leia mais detalhes sobre a Teya Iceland hf.

Portugal (Português)

Definições de cookies