
Hraðlestin hefur alla tíð verið mótuð af fólkinu í eldhúsi, framleiðslu eða afgreiðslu veitingahúsanna. Þar fer fjölbreyttur en samhentur hópur, leiddur af matreiðslumeisturum Hraðlestarinnar sem allir koma frá Indlandi.

Meðal þeirra eru Madaiah Kalaiah og Biju George. Báðir hafa skapað marga af vinsælustu réttum Hraðlestarinnar, hvort sem er á matseðli veitingahúsanna eða í matvöruverslunum. Madaiah og Biju eru tveir af fimm kokkum sem standa vaktina og tryggja gæði og stöðugleika Hraðlestarinnar. Vinnustaðurinn er fyrir þeim ansi heimilislegur, því með þeim starfa ekki aðeins vinir til margra ára, heldur einnig fjölskyldumeðlimir þeirra beggja.

Madaiah hefur starfað hjá Hraðlestinni frá stofnun 2003. Hann flutti til Íslands árið 1995 frá Hassan á Suður-Indlandi og hóf störf hjá móðurfyrirtæki Hraðlestarinnar, Austur-Indíafjelaginu. Eiginkona Madaiah er Manjula, en hún hefur einnig starfað hjá Hraðlestinni frá stofnun. Biju George er frá Kerala á Indlandi og hóf störf hjá Hraðlestinni árið 2013. Eiginkona hans, Shaibi, gekk til liðs við teymið árið 2016. Shaun er sonur hjónanna, en hann bættist í hópinn 2022 og starfar í dag við afgreiðslu með skóla. Shaun er einn af yngri meðlimum starfshópsins.
„Þegar maður er umkringdur fjölskyldu og vinum til margra ára, þá líður manni ekki alltaf eins og maður sé í vinnunni. Svo er ennþá skemmtilegra þegar starfsliðið gerir sér glaðan dag, þá er þetta eins og árshátíð gamals vinahóps,“ útskýrir Madaiah og hlær.

Biju og Madaiah eru sammála um að góður starfsandi hafi átt stóran þátt í að þeir hafi starfað hjá Hraðlestinni í svo mörg ár. Þar hafi þeir einnig notið frelsis til að vera skapandi og láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Biju og Madaiah eru hluti af fimm kokka teymi en samstarfsaðilar þeirra eru þeir Prakash Singh, Sathish Kumar og Jone Joseph. Saman standa þeir vaktina á fjórum veitingahúsum Hraðlestarinnar og í framleiðslueldhúsi þaðan sem vörur eru sendar í matvöruverslanir. Matreiðslumeistararnir koma frá mismunandi svæðum Indlands og hafa ólíka þekkingu og tækni sem móta þeirra eldamennsku. „Við förum allir árlega til Indlands með fjölskyldum okkar og snúum aftur heim með nýjan innblástur. Matarmenning Indlands er fjölbreytt og hefur þróast mikið á undanförnum árum - bæði innan landsins en einnig á alþjóðlegu sviði þar sem indversk matarmenning er að fá sífellt meiri athygli og skilning.“ útskýrir Biju.

Biju, sem nú sér til þess að kryddblöndur Hraðlestarinnar séu ávallt ferskar, bragðmiklar og í fullkomnu jafnvægi lærði frá unga aldri kúnstina að blanda kryddum eftir ævafornum hefðum Ayurveda, þar sem bragð og heilsa eru höfð að leiðarljósi. „Við tökum virkan þátt í því að finna upp á auknu vöruúrvali í verslunum og í hverri viku skiptumst við á að ákveða Rétt vikunnar. Við leggjum mikla áherslu á að nota heiðarleg hráefni - ferskan íslenskan kjúkling og krydd sem við flytjum inn frá Indlandi, til þess að framreiða hollan mat sem við getum öll verið stolt af og notið í viðurvist fjölskyldu okkar.“

Madaiah bætir við að það sé honum til mikils að vera hluti af líflegum og uppteknum rekstri sem hefur alltaf haft það að leiðarljósi að mynda brú milli Íslands og Indlands. „Það er mikill heiður að fá að kynna Íslendingum fyrir indverskum mat eins og við þekkjum hann, fólk fær að upplifa okkar menningu í sínu heimahúsi hér, hinum megin á hnettinum. En það sem hvetur okkur áfram er ekki aðeins að elda góðan mat heldur einnig að Hraðlestin hefur frá stofnun styrkt skóla í minni heimasveit í Coorg á Suður-Indlandi. Þar eru því 400 nemendur sem stóla á okkur fyrir kennslu, fæðu og tækifæri til betra lífs. Við erum stolt af því sem við gerum fyrir samfélagið okkar bæði á Íslandi og á Indlandi.“

Fyrir utan vinnuna hafa þeir báðir gaman af veiði og Madaiah fylgist einnig mikið með fótbolta, krikket og öðrum íþróttum. Báðir eyða þeir miklum tíma með fjölskyldum sínum en þeir eiga hvorir um sig þrjú börn. Það sem þeir kunna hvað mest að meta við Ísland er rólegt líf, friðsældin og hversu heiðarlegt og vingjarnlegt fólkið er. Það er þó eitt sem þeir eru sammála um að sé erfitt að venjast, veðrið. ‘‘Við erum báðir frá sólríkum og hlýjum svæðum á Indlandi, mín heimasveit er við strandlengju Kerala, þar er raki og hiti allan ársins hring og sveitin hans Madaiah er umlukin frumskógi og hrísgrjónaökrum. Við héldum hvorugir að við myndum flytja að heiman, hvað þá alla leið til Íslands.’’ segir Biju. ‘‘Ég flutti hingað að vetri til og hafði aldrei séð snjó áður’’ bætir Madaiah við og hlær.
Þegar horft er til framtíðar vona báðir Biju og Madaiah að Hraðlestin haldi áfram að vaxa án þess að missa sjónar á því sem skiptir mestu máli: að hjálpa fólki, styðja góðgerðarmál og halda áfram stuðningi sínum við skólaverkefnið á Indlandi.


Ready to get started with Teya today?
Team Teya
•
