Posar
//
af
Team Teya

Það er mikið að gera í hádeginu. Viðskiptavinur leggur símann sinn að posanum þínum, bíður eftir pípinu og fær sér kaffi. Þá spyr næsti viðskiptavinur, „Takið þið við Google Pay?“
Hvað íslenska kaupmenn varðar er svarið nánast alltaf "Já" nú til dags en það er skiljanlegt að fólk sé ruglað í ríminu.
Stafræn veski eins og Apple Pay og Google Pay hafa slegið í gegn. Farsímagreiðslur eru nú nánast allsráðandi á íslenska markaðnum. Þær eru ekki bara þægileg leið til að greiða fyrir vörur heldur eru þær tæki til að flýta fyrir þjónustu, draga úr veseni og jafnvel að komast framhjá hefðbundnum færslumörkum.
En hver er munurinn Apple Pay og Google Pay í raun og veru? Kostar ein lausnin meira en hin? Er önnur þeirra öruggari?
Hér er leiðarvísir fyrir íslenska fyrirtækjaeigendur sem ber Apple Pay saman við Google Pay — og segir þér hvers vegna fyrirtækið þitt þarf að vera tilbúið að bjóða upp á báðar lausnirnar.
Stutta svarið: Þetta er sitthvor hliðin á sama peningnum
Frá sjónarhóli kaupmannsins er nánast enginn munur á Apple Pay og Google Pay.
Báðar lausnirnar nota NFC-tækni (Near Field Communication) til að senda greiðslugögn úr snjallsíma eða snjallúri yfir í posann. Ef posinn þinn styður Visa og Mastercard (eins og allar greiðslustöðvar frá Teya gera), þá tekur hann sjálfkrafa við Apple Pay og Google Pay.
Þú þarft ekki að gera neitt aukalega til að „virkja þær“.
Það sem þessar lausnir eiga sameiginlegt
Kostnaður: Engin aukagjöld fylgja því að nýta Apple Pay eða Google Pay. Þú borgar venjuleg færslugjöld.
Hraði: Greiðslan fer í gegn samstundis.
Öryggi: Báðar lausnir nota „táknvæðingu“ (nánar um það hér að neðan) til að vernda greiðslugögn.
Helsti munurinn: Færslumörk
Þetta er leynivopnið í vopnabúri stafrænna veskja.
Á Íslandi eru mörk snertilausra greiðslna 7.500 krónur þegar debet- eða kreditkort er notað. Þegar borgað er með korti fyrir hærri upphæð þarf viðskiptavinurinn alltaf að slá inn PIN-númer í posann.
Með Apple Pay og Google Pay sleppa viðskiptavinir við þessar takmarkanir.
Þetta er vegna þess að viðskiptavinurinn staðfestir greiðsluna á símanum eða úrinu sínu með því að nota lífkenni (Face ID, Touch ID eða fingrafarsskanna) og greiðslan flokkast þá sem "sterk auðkenning viðskiptavina" (SCA) .
Fyrir viðskiptavininn: Hann getur greitt fyrir máltíð upp á 20.000 krónur eða jakkaföt upp á 100.000 krónur með einni snertingu.
Fyrir þig: Þú lendir ekki í þeim vandræðum að biðja þína bestu viðskiptavini um að "setja kortið í posann." Þetta skapar mýkra viðmót og eykur gæði þjónustunnar.
Apple Pay: Vinsæll kostur
Apple Pay er í miklum metum hjá stórum hluta íslenskra neytenda.
Notandinn: Hér er yfirleitt um iPhone-notendur að ræða. Á Íslandi fylgja þessum hópi jafnan hærri ráðstöfunartekjur.
Tæknin: Þekkt fyrir óaðfinnanlega samþættingu við Apple Watch.
Öryggi: Notar „Secure Element“ flögu í tækinu til að geyma dulkóðuð gögn. Apple deilir aldrei kortanúmerum með þér (eða neinum öðrum).
Google Pay: Android risinn
Apple er í farabroddi en Google skiptir sköpum fyrir fjölmarga Android-notendur sem kjósa tæki eins og Samsung eða Pixel.
Notandinn: Android notendur skipa stóran sess á íslenskum snjallsímamarkaði. Með því að bjóða ekki upp á Google Pay gætirðu verið að hunsa allt að helming viðskiptavina þinna.
Tæknin: Hún virkar á allskonar tækjum, frá ódýrari týpum upp í flaggskipssíma.
Öryggi: Síminn hermir eftir kortinu (Host Card Emulation) og nýtir skýjabundna táknvæðingu til að tryggja örugga greiðslu. Með þessu er kortanúmerið falið fyrir söluaðilanum alveg eins og hjá Apple.
Af hverju skiptir táknvæðing þig máli?
Kannski hefurðu heyrt banka eða tæknifyrirtæki nota þetta hugtak. Þetta er það sem það þýðir á mannamáli.
Þegar viðskiptavinur greiðir með korti les posinn þinn 16 stafa kortanúmerið (PAN). Ef hakkarar komast yfir þessi gögn gætu þeir klónað kortið.
Þegar greitt er með Apple Pay eða Google Pay sendir síminn tákn (handahófskennda röð af tölum) í stað kortanúmersins.
Ef þú lendir í því að einhver hakkar sig inn í tölvukerfið hjá þér þá fær hakkarinn ónothæf tákn en ekki kreditkortanúmer.
Ábyrgð: Þar sem þessar færslur eru staðfestar með lífkennum berð þú ekki ábyrgð á mögulegum svikum. Þess vegna er öruggara að greiða með síma en að nota hefðbundin plastkort.
Hvort ættir þú að kynna?
Bæði.
Þar sem þau keyra bæði á sömu NFC-tækninni þá þarftu ekki að velja. Þú getur auðveldlega boðið upp á bæði Apple Pay og Google Pay samtímis. Það sem skiptir mestu máli er að sýna viðskiptavinum þínum að þeir geti greitt með síma hjá þér.
Merkingar: Settu límmiða með merkjum "Apple Pay" og "Google Pay" í gluggana hjá þér. Þannig sýnirðu að þú rekur nýmóðins fyrirtæki sem styður farsímagreiðslur.
Við kassann: Þegar viðskiptavinur spyr hvort hann geti borgað með korti þá geturðu prófað að segja: "Kort, sími eða úr—hvað sem hentar þér best."
Hvernig Teya sameinar greiðslurnar þínar
Við hjá Teya teljum að þú ættir ekki að þurfa að hafa áhyggjur af einhverju tæknistríði á milli risanna í Kísildalnum. Þú vilt bara fá borgað.
Þess vegna er hver einasti posi frá Teya tilbúinn til að taka við Apple Pay, Google Pay, Samsung Pay og hverju sem kemur næst—um leið og þú tekur hann úr pakkningunni.
Engin uppsetning: Það virkar allt undir eins.
Engin aukakostnaður: Við tökum ekkert aukagjald fyrir farsímagreiðslur.
Hraðar útborganir: Hvort sem kúnnarnir borga með fési, fingri eða plasti þá færðu peningana næsta dag.
Samantekt
Baráttan á milli Apple Pay og Google Pay skiptir neytendur engu máli og hvað þig varðar eru þetta bandamenn. Þeir leyfa þér að taka við öruggum og mikilvægum greiðslum á hraðari máta en áður.
Með því að nýta farsímagreiðslur ertu ekki bara að halda í við tíðarandann heldur ertu að fjarlægja hindranir á milli viðskiptavina þinna og sölunnar. Hvort sem þú rekur fatabúð eða kaffihús þá er hraði ávísun á velgengni.
Ertu tilbúinn að taka við öllum greiðslum? Byrjaðu með Teya í dag

