

Seldu á netinu með greiðslusíðu Teya
Greiðslusíða Teya býður upp á öruggt og einfalt greiðsluferli. Við sjáum um öryggið, reglufylgnina og samþykktarferlið svo þú getir einbeitt þér að daglegum rekstri. Auðvelt er að tengja greiðslusíðuna við Shopify eða WooCommerce á örfáum mínútum.
Sérsniðnar tengingar
Ef þú notar annað vefumsjónarkerfi, þarft meiri sveigjanleika eða virkni sem viðbæturnar bjóða ekki upp á getur þú smíðað sérsniðna tengingu við Teya.
Þú getur tengst greiðslusíðunni og þjónustunni sem snýr að greiðslubeiðnum beint eða smíðað þitt eigið greiðsluflæði frá grunni.
Skoðaðu hér upplýsingar um vörurnar okkar eða heyrðu í okkur til að kanna möguleikana frekar.




Greiðslubeiðnir
Þó að þú sért ekki með netverslun getur þú samt sent greiðslubeiðni beint á viðskiptavini þína með tölvupósti, SMS eða netspjalli. Það tekur örfáar sekúndur að búa til greiðslubeiðni – hvort sem það er í posanum, appinu eða á þjónustuvefnum.
Eftir að þú sendir greiðslubeiðni ljúka viðskiptavinir þínir greiðslunni á öruggri greiðslusíðu Teya.

Uppsetning á örfáum mínútum - engin tæknikunnátta nauðsynleg

Skilvirk og örugg greiðslusíða sem virkar á öllum tækjum

Hnökralaus tenging við Shopify og WooCommerce

Við sjáum um öryggið svo að þú getir einbeitt þér að rekstrinum

Öruggt fyrir viðskiptavini þína, skilvirkt fyrir reksturinn




