Vörur

Fréttir

Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.

Verðskrá

Hjálp

Teya Fréttir

//

Kristinn Örn Agnarsson nýr forstjóri Teya á Íslandi

Kristinn Örn Agnarsson nýr forstjóri Teya á Íslandi

Kristinn Örn Agnarsson nýr forstjóri Teya á Íslandi

af

Team Teya

Kristinn Örn Agnarsson hefur tekið við sem forstjóri Teya á Íslandi. Kristinn kemur til Teya með víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu úr fjármála- og upplýsingatækni, en síðastliðin ár hefur hann stýrt starfsemi EveryData Group á ellefu mörkuðum í Karabíska hafinu. Ráðningin er liður í áframhaldandi uppbyggingu Teya á Íslandi, þar sem fyrirtækið þjónustar fyrirtæki af öllum stærðum með greiðslulausnir og tengda þjónustu.

Kristinn hefur starfað á alþjóðlegum mörkuðum um árabil. Hann hóf störf hjá Creditinfo Group árið 2010 og kom meðal annars fyrirtækjaþróun og alþjóðlega uppbyggingu samstæðunnar, þar sem hann kom að innkomu fyrirtækisins á meira en 15 nýja markaði. Síðar tók hann við sem fjármálastjóri Creditinfo Group og bar ábyrgð á fjármálastarfsemi samstæðunnar. Árið 2020 tók hann við sem forstjóri EveryData Group og hefur síðan stýrt starfsemi fyrirtækisins og lánshæfismatsfyrirtækja þess í 11 löndum í Karabíska hafinu.

„Það er mjög spennandi að taka við Teya á Íslandi á þessum tímapunkti. Fyrirtækið býr yfir sterku teymi, mikilli þekkingu á íslenskum markaði og um leið þeirri tækni og reynslu sem fylgir alþjóðlegu fyrirtæki. Ég hlakka til að vinna með teyminu og viðskiptavinum okkar að áframhaldandi þróun Teya og skoða hvernig við getum nýtt þessa styrkleika enn betur til að einfalda rekstur íslenskra fyrirtækja og styðja við vöxt þeirra,“ segir Kristinn Örn Agnarsson, forstjóri Teya á Íslandi.

Kristinn kemur úr Njarðvík, er með BSc-gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið Advanced Management Program (AMP) við Yale School of Management.

Ali Mazanderani, stjórnarformaður Teya á íslandi, segir reynslu Kristins falla vel að þeim styrkleikum sem þegar séu til staðar innan íslenska teymisins.

„Við erum með öflugt og reynslumikið teymi á Íslandi sem hefur byggt upp mikla þekkingu á greiðslumiðlun og þörfum íslenskra fyrirtækja. Kristinn kemur inn með aðra og verðmæta reynslu, meðal annars af fjármálum, rekstri og uppbyggingu fyrirtækja á fjölmörgum mörkuðum. Sú blanda styrkir teymið enn frekar og við hlökkum mikið til samstarfsins og næstu skrefa hjá Teya á Ísland,” segir Ali.

Stjórn og starfsfólk Teya vill koma á framfæri einlægum þökkum til Brian Jeffrey Gross sem hefur leitt fyrirtækið farsællega undanfarin þrjú ár en hverfur nú til annarra verkefna.