Vörur

Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.

Verðskrá

Hjálp

Viðskiptaráð

//

Hvernig á að samþætta pos-kerfi við greiðsluterminal

Hvernig á að samþætta pos-kerfi við greiðsluterminal

Hvernig á að samþætta pos-kerfi við greiðsluterminal

af

Team Teya

Ímyndaðu þér að klukkan sé 19:30 á föstudegi og barinn þinn sé stútfullur af fólki. Hávaðinn er ærandi og fólk hópast að barnum. Einn viðskiptavinur pantar fullt af drykkjum sem kosta 13.500 allt í allt. Barþjónninn snýr sér að posanum en slær óvart inn 1350 krónur í flýti. 

Í lok kvölds, þegar þú tekur eftir mistökunum, er viðskiptavinurinn löngu farinn. Þessi innsláttarvilla var þér mjög dýrkeypt. Þegar POS-kerfið þitt og kortavélin tala ekki saman þá treystirðu á tvöfalda, handvirka færslu. Þetta hægir á þjónustunni, starfsfólki finnst þetta pirrandi og fyrirtækið gæti orðið fyrir daglegu tekjutapi þegar það eru villur í greiðslum.

Eins og við vitum öll er stór meirihluti greiðslna á Íslandi snertilaus, annaðhvort með snjallsímum eða kortum. Séu þessar greiðslur ekki samþættar þá finnurðu fyrir töfum í langflestum sölum þínum.

Þegar þú tengir POS-kerfið þitt beint við greiðsluterminal frá Teya þá lagast þetta samstundis. Villur í greiðslum eru útilokaðar með því að senda nákvæma heildarupphæð kröfunnar beint í greiðsluterminalinn þinn. Þannig verða mannleg mistök liggur við ómöguleg og þú flýtir fyrir þjónustunni til muna.

Hinn raunverulegi kostnaður við ósamþættar greiðslur

Rekstrarumhverfi minni fyrirtækja er gríðarlega krefjandi eins og staðan er á Íslandi í dag. Stundum má lítið út af bera og hver sekúnda skiptir máli. Ef starfsfólk þitt slær upphæðir handvirkt inn í posa taparðu tíma og peningum.

Falin áhætta í handvirkum innslætti

  • Dýr mistök: Að slá inn 450 krónur í stað 4500 króna gerist oftar en margir vilja viðurkenna. Margt smátt gerir eitt stórt og það dregst sífellt úr hagnaðinum.

  • Lengri biðraðir: Það tekur lengri tíma að slá hverja sölu inn handvirkt.  Þegar mikið er að gera breytast sekúndur í mínútur og það getur valdið pirringi hjá viðskiptavinum og þeir sem eru óþolinmóðir gætu jafnvel látið sig hverfa.

  • Martröð í lok dags: Þegar á að gera upp eftir vakt þarf vaktstjórinn eða yfirmaðurinn oft að eyða mörgum tímum í að finna færslurnar sem passa ekki. Þetta seinkar lokunartíma og eykur starfsmannakostnað.

Með því að samþætta kerfin þín geturðu fínstillt afgreiðsluferlið og þar með fjarlægt allt þetta vesen sem fylgir posa- og kassakerfum. Þegar heildarupphæðin er reiknuð út í kassanum birtist hún samstundis á Teya-posanum. Viðskiptavinurinn leggur kortið sitt að posanum og greiðslan skráist sjálfkrafa inn í kerfið. Ferlið er óaðfinnanlegt, fagmannlegt og veldur engu stressi. Þetta er sjálfvirknivæðing greiðslna.

Skref fyrir skref: Að tengja POS-kerfið þitt við Teya

Við hönnuðum kerfið okkar til að virka vel með þeim tólum sem þú notar nú þegar. Teya samþættist óaðfinnanlega við marga af leiðandi EPOS-veitendum í íslenska veitinga- og smásölugeiranum.

Svona virkar samþættingarferlið.

1. Athugaðu hvað POS-kerfið þitt styður

Áður en þú byrjar skaltu athuga hvort núverandi kassakerfi þitt styður Teya. Við erum í samstarfi við fjöldann allan af fremstu hugbúnaðarframleiðendum heims. Ef þú ert í því ferli að velja POS-kerfi getur þjónustuteymi okkar mælt með bestu kostunum fyrir þinn geira, hvort sem þú rekur vinsælt kaffihús á Laugarveginum eða fatabúð með marga sölustaði.

2. Undirbúðu Teya-greiðsluterminalinn þinn

Gakktu úr skugga um að það sé kveikt á Teya-posanum þínum, að hann sé fullhlaðinn og tengdur við öruggt Wi-Fi. Stöðug nettenging er nauðsynleg til að afgreiðslukassi og posi geti átt samskipti. Ef þú ert að setja upp glænýtt tæki skaltu fylgja uppsetningarleiðbeiningum okkar til að koma því á netið.

3. Paraðu tækin

Þó að nákvæmir hnappar séu örlítið mismunandi eftir POS-hugbúnaðinum sem þú notar, þá er pörunarferlið ótrúlega einfalt:

  • Opnaðu stillingarvalmyndina á skjánum á posanum þínum.

  • Farðu í „Greiðslutegundir“ eða „Samþættar greiðslur“.

  • Veldu „Teya“ af listanum yfir þjónustuaðila.

  • Sláðu inn einstöku IP-töluna eða pörunarkóðann sem birtist á skjá Teya-posans.

  • Smelltu á „Tengjast“.

4. Keyrðu prufufærslu

Keyrðu alltaf prufufærslu upp á 1 krónu áður en þú ferð að þjónusta viðskiptavini. Láttu eins og þú sért að kaupa eitthvað, veldu „Kortgreiðsla“ og sjáðu upphæðina birtast samstundis á Teya-vélinni. Notaðu þitt eigið kort til að ljúka sölunni og staðfestu að kvittunin prentist eins og hún á að gera.

Hvers vegna eru lítil og meðalstór fyrirtæki að skipta yfir í Teya

Það er frábært að hafa samþættar greiðslur, en það er nauðsynlegt að hafa réttan greiðsluaðila. Það er hægt að fá posa úr mörgum áttum á íslenskum markaði en þeir eru margir hverjir klunnalegir og sumir bjóða ekki upp á þessa samþættingarmöguleika.

Teya var stofnað til að vera bandamaður minni fyrirtækja. Þetta eru ástæðurnar fyrir því að viðskiptavinir okkar velja Teya:

Greiðslur næsta dag

Sjóðstreymið er lífæð allra lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hefðbundnir bankar geyma oft fé þitt í allt að fimm virka daga en við gerum hlutina öðruvísi. Hjá Teya greiðum við út allt það sem þú halaðir inn á annasömu laugardagskvöldi strax næsta dag. Þú getur greitt birgjum þínum, keypt nýjar vörur og rekið fyrirtækið þitt tafarlaust.

Sanngjörn og heiðarleg verðlagning

Við hjá Teya trúum á algjört gagnsæi. Við bjóðum upp á mjög samkeppnishæf og einföld verð án nokkurra falinna gjalda, viðurlaga vegna PCI-samræmis eða flókinna stigskiptinga. Þú veist nákvæmlega hvað þú borgar sem gerir þér kleift að vernda hagnað þinn auðveldlega.

Snöggur og áreiðanlegur stuðningur

Tæknilegir örðugleikar eru óhjákvæmilegir af og til. Þegar þú missir nettenginguna í hádeginu á sunnudegi hefurðu ekki tíma til að bíða eftir því að fá aðstoð frá þjónustuveri eða spjallþjóni. Við bjóðum upp á hraða, staðbundna og hjálplega þjónustu. Teymið okkar leggur sig allt fram til að koma þér aftur af stað svo þú missir aldrei af sölu. 

Framtíð íslenskrar veitingatækni

Gögnin eru skýr. Rannsóknir sem voru framkvæmdar í Bretlandi sýna að staðir þar í landi sem fjárfesta í nettengdri tækni sjá beina aukningu í veltu á borðum og almennri ánægju viðskiptavina.

Árið 2026 er samþætt POS-kerfi ekki lengur lúxus fyrir stóru keðjurnar. Það er algjör nauðsyn fyrir öll sjálfstæð fyrirtæki sem vilja blómstra og dafna og veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi upplifun.

Þegar kerfin þín tala saman þá losar þú starfsfólk þitt undan þeirri kvöð að þurfa að fást við ákveðin umsjónarverkefni. Í stað þess að stara á skjái og slá inn tölur geta þau horfst í augu við viðskiptavini, boðið upp á framúrskarandi þjónustu og tekist á við annasamar tarnir af öryggi.

Niðurstaða: Hættu að skrifa, byrjaðu með snertilausar greiðslur

Handvirkur innsláttur er fortíðin. Hann veldur gremju, biðröðum og kostar fyrirtækið þitt peninga í hverri einustu viku. Að samþætta POS-kerfi við Teya greiðsluterminal er einfaldasta og hraðvirkasta leiðin til að sjálfvirknivæða greiðslur.

Sú vitneskja að hver færsla verður nákvæm og veitir þér hugarró .Ásamt því þá jafnast skýrslurnar þínar í lok dags sjálfkrafa út. Viðskiptavinir þínir munu þess vegna njóta þess að versla við þig í hröðu og fagmannlegu umhverfi.

Byrjaðu með Teya 

Ertu tilbúin/n að bæta greiðsluferlið þitt og tengja afgreiðslukassann? Bókaðu kynningu hjá teyminu okkar í dag og leyfðu okkur að sýna þér nákvæmlega hversu auðveld þessi samþætting getur verið.