
Með Raðgreiðslum Teya geta viðskiptavinir þínir dreift stærri kaupum á þægilegan hátt. Þú færð greitt eins og um venjulega kortafærslu sé að ræða, næsta virka dag.
Engin mánaðargjöld, engin föst áskrift, bara skýr verðskrá og einföld uppsetning.

Hvers vegna að bjóða
Raðgreiðslur Teya?
Þegar viðskiptavinir þínir geta dreift greiðslum opnast tækifæri fyrir meiri sölu. Við sjáum um lánið - þú einbeitir þér að rekstrinum.
Ekkert app, engin uppsetning hjá viðskiptavini
Viðskiptavinir þínir þurfa hvorki að sækja app né skrá sig fyrirfram, aðeins að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.
Engin mánaðargjöld — aðeins vinnslugjald
á hvert lán
Þú greiðir 198 kr. fyrir hvern raðgreiðslusamning samkvæmt verðskrá. Engin föst áskrift, þóknun eða falin gjöld.
Þú færð greitt næsta virka dag
Raðgreiðslulán Teya gerast upp eins og kortauppgjörin að frádregnu vinnslugjaldi. Þú þarft ekki að bíða í 14 eða 30 daga eftir uppgjöri.
Hærri velta, meiri sala
Viðskiptavinir geta tekið lán fyrir allt að 1.990.000 kr. og dreift greiðslum í allt að 36 mánuði.
Öll verð uppi á borðum
Þú þarft ekki að biðja um tilboð, verðskráin okkar er opin og gegnsæ.

Í verslun, í gegnum lánavefinn
Starfsfólkið þitt stofnar lánið við kassann og viðskiptavinurinn staðfestir með rafrænum skilríkjum. Þú getur líka stofnað lán handvirkt á þjónustuvef Teya.

Í vefverslun með tilbúnum tengingum
Við erum með tilbúnar tengingar við Magento og WooCommerce, svo þú getur bætt Raðgreiðslum við greiðsluferlið án mikillar tæknivinnu.

Í þínu kassakerfi
Raðgreiðslur Teya tengjast nýjustu útgáfum Business Central.
Raðgreiðslur Teya fyrir viðskiptavini þína
Þegar þú býður Raðgreiðslur Teya færir þú viðskiptavinum þínum lausn sem er einföld, sveigjanleg og skýr.
Viðskiptavinur auðkennir sig með rafrænum skilríkjum og þarf ekki að nýskrá sig né vera með aðgang.
Dreift í allt að 36 mánuði. Hægt er að vera með allt að fimm lán í einu.
Viðskiptavinurinn getur valið fyrsta gjalddaga allt að tvo mánuði fram í tímann.
Greiðsla er dregin beint af kreditkorti milli 15. og 26. hvers mánaðar.
Viðskiptavinur getur greitt inn á lánið í gegnum öruggan greiðsluvef. Það kostar ekkert og lækkar heildarvexti.
Á Raðgreiðsluvef Teya geta viðskiptavinir þínir skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og séð lánin sín, mánaðarlegar greiðslur, lánaheimild og afrit af samningum.
Allt uppi á borðinu, alltaf.
Söluaðili greiðir
Vinnslugjald per samning (seljandi)
198 kr
Lántökugjald
0%
Mánaðargjald
0 kr

Fylltu út formið og teymið okkar hefur samband.

















