Við sjáum um allt
Posarnir okkar styðja við þig í gegnum daglegan rekstur fyrirtækisins. Allt frá því að taka við greiðslum, prenta kvittanir, yfirlit yfir sölur og allt þar á milli. Við léttum þér álagið svo þú getir einbeitt þér að því sem að skiptir máli.
Útskipti þér að kostnaðarlausu
Ef posinn þinn er orðinn sjúskaður, eða þú missir hann óvart - ekki hafa áhyggjur. Þú getur alltaf fengið ókeypis útskipti hjá okkur.
Sæktu eða fáðu sent
Hægt er að sækja posann til okkar í Katrínartúnið, eða fá hann sendan þangað sem þú ert. Þú stýrir ferðinni.
Erum þér innan handar
Við viljum veita þér frelsi og svigrúm til þess að reka fyrirtækið þitt. Þjónustufulltrúar okkar eru því ávallt reiðubúnir til aðstoðar.
Úrval snjallra posa
Við bjóðum upp á úrval snjallra posa, hvort sem þeir séu snúrutengdir eða þráðlausir þá eigum við lausnina fyrir þinn rekstur.
Sérsniðnar tengingar fyrir fyrirtæki þitt.
Við höfum byggt upp mikið úrval af kassakerfistengingum við leiðandi POS kerfi, svo þú getur auðveldlega tengst uppáhalds viðskiptatólunum þínum.










Kassakerfistengingar
Tenging til staðar við öll helstu kassakerfin á markaðnum.
Einföld skýjalausn sem tengir saman þitt sölukerfi
við Teya posa.
Aðstoð við innleiðingu frá sérfræðingum Teya.
Myntval (DCC)
Erlendir viðskiptavinir greiða fyrir vöru eða þjónustu í eigin gjaldmiðli.
Virkt fyrir allar helstu posalausnir Teya og Greiðslusíðu
NÝTT!
Algengar spurningar
Hver er kostnaðurinn við posa hjá Teya?
Teya býður upp á sveigjanlegar lausnir sem henta fyrirtækinu þínu. Fyrir frekari upplýsingar skoðaðu verðskrá Teya
Hvernig fæ ég greiðslur mínar?
Við greiðum þér út næsta virka dag, á bankareikninginn sem þú hefur skráð hjá okkur.
Hversu langan tíma tekur það að setja upp posann minn?
Þegar posinn er afhentur, er hann þegar tengdur við fyrirtækið þitt, þú fylgir aðeins einföldum skrefum til að stilla þína valkosti og getur strax tekið við færslum.
Hvaða greiðslumáta get ég tekið á móti?
Öllum helstu greiðslumátum, þar á meðal Visa, Mastercard, AMEX, Apple Pay, Google Pay, Samsung Pay, Maestro, Visa Electron og V Pay.
Get ég tekið við kortagreiðslum ef viðskiptavinur er ekki á staðnum?
Já, þú getur notað Greiðslutengla (Pay-by-link) í posanum til að senda rukkun með tölvupósti eða SMS til viðskiptavina þinna, svo þeir geti greitt þér hvar sem þeir eru.
Er posinn öruggur?
Teya starfar samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum og vinnur með leiðandi samstarfs- og eftirlitsaðilum. Við dulkóðum öll korta- og PIN gögn end-to-end til að tryggja að þú og viðskiptavinir þínir séu alltaf öruggir.
Get ég skoðað og fylgst með færslum mínum?
Já, þú getur skoðað daglegar sölutölur eða nákvæmar sundurliðanir á posanum þínum. Og þú getur fylgst með uppgjörum og fylgst með viðskiptum í símanum þínum eða tölvu með Teya appinu.
Eru til samþættingar við hin ýmsu POS kerfi?
Já, posar okkar tengjast hinum ýmsu EPOS kerfum, til þess að einfalda þér og þínu fyrirtæki dagleg störf.