Skip to content

Greiðslugátt

Bættu greiðsluferlið þitt

Auktu afköst greiðsluferilsins með innbyggðri greiðslusíðu sem heldur viðskiptavinum á vefsíðunni þinni.

    Aðalmynd fyrir innfellda íhluti

    Greiðsluferli sniðið að þinni vefsíðu

    Hannaðu þitt eigið greiðsluferli með UI viðmótseiningum, eða settu greiðslusíðuna beint inn í greiðsluferlið þitt - þú ræður ferðinni. Greiðslusíðan er hönnuð fyrir sölu og dregur úr hindrunum fyrir viðskiptavini þína, á meðan kortagögn eru geymd á netþjónum Teya og innbyggð svikavörn tryggir öryggi hverrar greiðslu.

    Ávinningur fyrir reksturinn þinn

    Þín síða, þitt vörumerki

    Settu innbyggða greiðslusíðu á vefsíðuna þína og haltu viðskiptavinum á síðunni þinni. Greiðslusíðan er sérsniðin að þínu útliti.

    Hannað til að selja

    Bjóddu viðskiptavinum upp á hnökralaust greiðsluferli með innbyggðri greiningu og staðfestingu á kortategund, skiljanlegum villuskilaboðum, sjálfvirkri útfyllingu og fleiru.

    Öruggt söluferli

    Léttu á PCI-DSS-byrðinni með því að hýsa kortagögnin þín á öruggan hátt á netþjónum Teya, svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum.

    Innbyggð svikavörn

    Innbyggt 3D Secure og auðkenning hjálpa til við að greina og koma í veg fyrir svik.

    Svona virkar þetta

    Frá vefsíðunni þinni að greiðslu, án þess að fara af síðunni.

    1

    Viðskiptavinur verslar

    Viðskiptavinurinn verslar í vefversluninni þinni.

    2

    Greitt á síðunni þinni

    Viðskiptavinurinn lýkur greiðslunni án þess að fara af síðunni þinni og við söfnum kortaupplýsingum á öruggan hátt.

    3

    Greiðslan er afgreidd

    Við afgreiðum greiðsluna og staðfestum hana samstundis.

    4

    Sölu lokið

    Sölunni er lokið og viðskiptavinurinn fer aldrei af síðunni þinni.

    Vertu með greiðsluferlið á síðunni þinni

    Settu örugga og innbyggða greiðslusíðu Teya á vefsíðuna þína fyrir einfalt og þægilegt greiðsluferli.