Vörur

Fréttir

Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.

Verðskrá

Hjálp

Raðgreiðslur Teya

Raðgreiðslur Teya

Einföld leið til að teygja á stærri kaupum með kortaláni

Einföld leið til að teygja á stærri kaupum með kortaláni

Dreifðu greiðslunum í allt að 36 mánuði.

Teygðu á stærri kaupum hjá söluaðilum okkar

Teygðu á stærri kaupum hjá söluaðilum okkar

Raðgreiðslur Teya

  • Engin þörf á appi eða fyrirframskráningu

    Engin þörf á appi eða fyrirframskráningu

    Viðskiptavinur auðkennir sig með rafrænum skilríkjum og þarf ekki að nýskrá sig né vera með aðgang.

  • Lán fyrir allt að
    1.990.000 kr.

    Lán fyrir allt að
    1.990.000 kr.

    Hægt er að dreifa greiðslum í allt að 36 mánuði með kreditkortinu þínu

  • Sveigjanlegur greiðslufrestur

    Sveigjanlegur greiðslufrestur

    Fyrsti gjalddagi getur verið allt að tveimur mánuðum fram í tímann

  • Sjálfvirkar mánaðarlegar greiðslur

    Sjálfvirkar mánaðarlegar greiðslur

    Greiðsla er dregin beint af kreditkorti milli 15. og 26. hvers mánaðar.

  • Möguleiki að greiða inn á lán

    Möguleiki að greiða inn á lán

    Viðskiptavinur getur greitt inn á lánið í gegnum öruggan greiðsluvef. Það kostar ekkert og lækkar heildarvexti.

Kannaðu heimildina þína inn á raðgreiðsluvef Teya þar sem þú getur séð lánin þín, afrit af samningi, eða greitt inn á lán - allt á einum stað.

Algengar spurningar

Hvað get ég dreift láninu í margar greiðslur?

Almennt er hægt að dreifa greiðslum allt frá 2 og upp í 36 mánuði. Lágmarks lánstími ræðst einnig af reglugerð neytendastofu um Árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK).

Sjá nánar um ÁHK

Hvernig sæki ég um raðgreiðslulán?

Þú sækir um raðgreiðslulán hjá verslunum og þjónustuaðilum sem bjóða upp á þau við kassa eða greiðslusíðu í vefverslun. Það þarf ekki að sækja neitt app eða forskrá sig neins staðar.

Hvað kostar að taka raðgreiðslulán?

Kostnaður og kjör vegna raðgreiðslulána má finna í verðskrá Teya (Verðskrá).

Hvernig fara afborganir fram?

Mánaðarlega er dregið af kreditkortinu þínu, sem þú skráðir á lánið við stofnun þess, á tímabilinu 15.–26. hvers mánaðar fyrir næsta gjalddaga. Ef ekki tekst að skuldfæra kortið kemur greiðsluseðill í heimabanka með næsta ógreidda gjalddaga.

Hvað get ég tekið margar eða háar raðgreiðslur?

Þú getur séð hversu mörg lán og heildarupphæð skuldar inni á raðgreiðsluvef Teya.

http://radgreidslur.is/

Hversu mikið er eftir af láninu mínu?

Með því að skrá þig inn hér með rafrænum skilríkjum getur þú séð allar upplýsingar um lánin þín, eftirstöðvar, mánaðarlegar greiðslur, lánaheimild og afrit af lánasamningum.

http://radgreidslur.is/

Hvernig greiði ég aukalega inn á lánið mitt?

Þú getur greitt upp eða greitt aukalega inn á lánið þitt með korti á raðgreiðsluvefnum okkar.

http://radgreidslur.is/

Hvað geri ég ef ég skipti um kort?

Ef þú þarft að endurnýja eða uppfæra kortaupplýsingarnar á láninu skaltu hafa samband við þjónustuver Teya í síma 560 1600. Ekki senda kortanúmer í tölvupósti eða netspjalli.

Af hverju var umsókninni minni um raðgreiðslulán hafnað?

Algengar ástæður höfnunar:

  • Lánamörk eru ekki nógu há. Lánaheimild byggist á lánshæfismati hjá Creditinfo. Hægt er að sjá lánamörk og upplýsingar um öll lánin á þinni kennitölu með því að skrá sig inn hér: http://radgreidslur.is/

  • Ekki er hægt að nota debetkort, fyrirframgreitt kreditkort eða fyrirtækjakort.

  • Hámarksfjöldi virkra lána er 5, ef því er náð er ekki hægt að stofna nýtt lán.

  • Kort er útrunnið, rangt öryggisnúmer eða rangar upplýsingar í umsókn.

  • Lántaki uppfyllir ekki 20 ára aldurstakmark.

  • Lántaki er ekki með lögheimili á Íslandi.

Afhverju er heimildin mín 0 kr?

Til þess að ákvarða heimild einstaklinga nýtir Teya meðal annars gögn frá creditinfo. Ástæður fyrir að heimild gæti verið 0 kr. gætu verið að heimild sé fullnýtt, lánshæfismat creditinfo, viðkomandi er á vanskilaskrá eða að viðkomandi sé í vanskilum með Teya raðgreiðslulán.