Vörur

Fréttir

Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.

Verðskrá

Hjálp

Sögur viðskiptavina

//

Takk fyrir okkur, Götubitahátíð 2026!

Takk fyrir okkur, Götubitahátíð 2026!

Takk fyrir okkur, Götubitahátíð 2026!

af

Team Teya

Götubitahátíðin fór fram í Hljómskálagarðinum um helgina og við hjá Teya erum stolt af því að vera einn af aðalstyrktaraðilum hátíðarinnar. 

Götubitahátíðin er einn stærsti matarviðburður landsins og fer fram árlega í Hljómskálagarðinum. Í ár fylltu þátttakendur meira en fjörutíu matarvagna og buðu gestum upp á fjölbreyttan og spennandi mat frá öllum heimshornum. Þó að veðrið hafi sett svip sinn á helgina þá stoppaði það ekki fjölda gesta sem sóttu hátíðina og nutu vel í Hljómaskálagarðinum. 

Sigurvegarar ársins 2026 

Hápunktur hátíðarinnar er keppnin um bestu götubita landsins og við hjá Teya veittum sigurvegurunum verðlaun í öllum flokkum: 

Besti Götubitinn: Siggi Chef 

Besti Smábitinn: Tasty 

Besti Sætibitinn: Churros-vagninn 

Besti Hamborgarinn/samlokan: 2Guys 

Götubiti fólksins: Chevere 

Sigurður Gunnlaugsson, betur þekktur sem Siggi Chef, stóð uppi sem sigurvegari í aðalkeppninni með sinni einstöku blöndu af reyk og kryddi og fékk eina milljón króna í verðlaun. Hann keppir fyrir Íslands hönd á European Street Food Awards í lok september og við höldum að sjálfsögðu með honum alla leið. 

Til hamingju, öllsömul! 

Ís, bakkelsi og kaffi með viðskiptavinum okkar 

Á hátíðinni gerðum við vel við gesti með veitingum frá viðskiptavinum okkar. Á laugardeginum buðum við upp á ís frá Gaeta Gelato og á sunnudeginum bakkelsi frá 280 Bakarí og kaffi frá Reykjavík Roasters. Það var frábært að vera partur af hátíðinni með fyrirtækjum sem við vinnum með alla daga.


Hvers vegna styðjum við Götubitahátíðina? 

Okkur finnst mikilvægt að fagna þeim fjölbreytta mat sem boðið er upp á og að veita þessum drífandi rekstraraðilum vettvang til að bjóða upp á matinn sinn, upplifunina sem honum fylgir og að að kynna sig fyrir samfélaginu. 

Hátíð eins og þessi eflir samfélagið okkar. Hún býður upp á mannleg tengsl, fjölbreytta matarupplifun og tækifæri fyrir fólk til að kynnast fyrirtækjunum í kringum sig – fólkinu sem leggur hjarta og sál í reksturinn sinn. 

Á meðan gestir nutu matarins sáum við til þess að greiðslurnar myndu ganga hratt og örugglega fyrir sig þannig að söluaðilar gætu einbeitt sér að því sem þau gera best – að elda frábæran mat og taka vel á móti sínum viðskiptavinum. 

Takk fyrir okkur. Sjáumst í Hljómskálagarðinum að ári!