Sumarútgáfan er stærsta útgáfan okkar til þessa með nýjum leiðum til að fá greitt á staðnum og á netinu, snjallari tólum fyrir fjármálin þín og nýrri gervigreind sem tengir þetta allt saman.
Hér er stutt yfirlit yfir nýjungarnar.
Ný kynslóð posa
Kynntu þér nýja Teya Plús posann sem heldur öllu gangandi með því að afgreiða greiðslur á innan við tveimur sekúndum og rafhlöðu sem endist allan daginn. Viðskiptavinir þurfa nú aðeins að leggja símann að posanum til þess að fá kvittun, engin þörf er á að prenta þær út.
Teya Plús er nú fáanlegur með öllum nýjum posapöntunum.
Öflugur nýr hugbúnaður í posanum þínum
Hugbúnaðaruppfærsla er væntanleg fyrir posann sem þú notar nú þegar og hún kemur sjálfkrafa með innleiðingunni. Nýtt útlit og ný tól. Ný valmynd. Heimaskjár í yfirlitsstíl sem gerir þér kleift að athuga daglega sölu á fljótlegan hátt. Flýtileiðir sem vinna með þér. Settu upp flýtileiðir fyrir þær aðgerðir og upphæðir sem þú notar mest. Vörumerkið þitt á skjánum. Í kassakerfisstillingu birtist lógóið þitt á skjánum sem snýr að viðskiptavininum.
Stærri uppfærsla á greiðslubeiðnum
Sendu öruggar greiðslubeiðnir með tölvupósti, SMS eða spjalli og búðu til og deildu beiðnum á nokkrum sekúndum í Teya appinu þínu eða posanum. Viðskiptavinurinn þinn lýkur greiðslunni á öruggri Teya síðu, sem er tilvalið fyrir pantanir í síma, reikninga eða fjarsölu. Nú með endurnýtanlegum greiðslubeiðnum sem þú getur sent oftar en einu sinni, hraðvirkara ferli við að stofna beiðnir, gildistíma og vörulínum og einn staður til að fylgjast með og hafa umsjón með öllum beiðnum.
Allt sem þú þarft til að taka við greiðslum á netinu
Örugg og áreiðanleg tól fyrir netverslun sem eru jafn einföld í notkun og aðrar lausnir frá Teya. Skráðu þig inn, tengdu verslunina þína og byrjaðu að taka við greiðslum á nokkrum mínútum. Fylgstu svo með sölunni á netinu og í Teya appinu.
Seldu á netinu á öruggan hátt með greiðslusíðu
Bjóddu upp á öruggar og hnökralausar greiðslur á hvaða tæki sem er með öllum helstu greiðslukortum auk Apple Pay og Google Wallet. Samþættu Shopify- eða WooCommerce-verslunina þína á nokkrum mínútum og við sjáum um greiðsluvinnslu, öryggi og regluvörslu, svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af PCI.
Ég hef áhuga!Og þetta kemur allt saman í appinu og á þjónustuvefnum
Allt þetta kemur í endurhönnuðu Teya appi og þjónustuvef, með skýrari yfirsýn og heimaskjá sem þú getur sérsniðið að þínum þörfum og samstillt þannig að þú getir byrjað í símanum og haldið áfram í tölvunni.
Sala og uppgjör, skýrari en áður
Nýja sölusvæðið safnar færslunum þínum, skýrslum og árangri saman á einum stað. Berðu daginn í dag saman við síðustu viku, sjáðu annasömustu tímana og skoðaðu einstakar færslur nánar. Uppgjörin eru líka skýrari: sjáðu uppgjörsgreiðslurnar þínar eftir dögum, posum og rásum á einum stað, með skýrri stöðu fyrir hverja útborgun.
Kynntu þér gervigreind Teya
Teya gervigreindin er nýtt tól með sitt eigið svæði. Spurðu einfaldra spurninga um reksturinn þinn, eins og af hverju salan dróst saman í síðustu viku eða hvenær næsta uppgjör berst, og fáðu svör sem byggjast á þínum eigin gögnum. Gervigreindin getur líka framkvæmt aðgerðir fyrir þig, eins og að búa til greiðslubeiðni, svo þú eyðir minni tíma í að leita í gegnum síður og valmyndir.
Kemur út í beta útgáfu og verður innleitt smám saman á næstu vikum
Einnig í þessari uppfærslu
Sala eftir samning. Sjáðu ítarlegt yfirlit fyrir hvern samning, allt í einni yfirsýn.
Vistuð yfirsýn. Vistaðu síurnar og skýrslurnar sem þú notar mest til að nálgast þær aftur auðveldlega.
Endurkröfulisti. Fylgstu með öllum endurkröfum á einum stað.
Bættu við lógóinu þínu. Settu þitt eigið vörumerki í posann og á kvittanir.
Fáðu teymið með. Bjóddu starfsfólkinu þínu, stilltu heimildir og tengdu alla á nokkrum mínútum.
Sjáðu verðin þín. Skoðaðu skýra framsetningu á gjaldskránni og þjónustugjöldunum hvenær sem er.
Umsjón með posunum þínum. Skoðaðu og stýrðu öllum posunum þínum frá einum stað.
Kemur fljótlega
Nýi posahugbúnaðurinn, appið og þjónustuvefurinn verða innleidd smám saman í ágúst. Nýi Teya Plús posinn er fáanlegur núna með öllum nýjum pöntunum.









