Vörur

Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.

Verðskrá

Hjálp

Appið og þjónustuvefurinn, endurhönnuð til að gera meira

Appið og þjónustuvefurinn, endurhönnuð til að gera meira

Teya appið og þjónustuvefurinn hafa verið endurhönnuð frá grunni með einfaldara útliti og yfirliti, nýjum eiginleikum og betra aðgengi að þeim verkfærum sem þú notar mest. Breytingarnar verða aðgengilegar í næstu útgáfu appsins og innleiðingin hefst í byrjun júlí.

Við vildum láta þig vita með góðum fyrirvara áður en þessi uppfærsla verður gefin út svo þú getir skoðað væntanlegu breytingarnar. Þú tapar engu, öll verkfærin sem þú notar í dag eru enn til staðar. Sumt hefur verið fært til svo auðveldara sé að finna það og margt er nýtt. Þessi færsla leiðir þig í gegnum helstu uppfærslurnar.

Svo margt af því sem er nýtt kom frá ykkar ábendingum. Takk fyrir að hjálpa okkur að móta nýju hönnunina. 

Heim

Einfaldari forsíða, sniðin að daglegum rekstri

Nýja forsíðan setur það sem þú skoðar oftast, eins og sölu dagsins og nýleg uppgjör, efst á síðuna. Allir ferlar eru skipulagðir eftir skýrum síðum: forsíða, sala, fjármál og nýja Teya gervigreindin. Færslurnar þínar og skýrslur eru á sölusíðunni, uppgjörsgreiðslurnar á fjármálasíðunni og Teya gervigreindin hefur sína eigin síðu. Samningarnir þínir, teymi og stillingar eru enn á sínum stað í aðgangsstillingunum þínum.

Hafðu forsíðuna eins og þú vilt hafa hana

Nýtt: nú geturðu sérsniðið forsíðuna. Mikilvægustu tölurnar eru vel sýnilegar og aðgengilegar í hvert sinn sem þú opnar appið.

Sama nýja útlitið í tölvunni og spjaldtölvunni

Þjónustuvefurinn hefur fengið sömu yfirhalningu og appið. Hann veitir nú skýrari yfirsýn með sömu undirsíðum og í appinu: forsíðu, sölu, fjármál og gervigreind og meira pláss til að kafa ofan í tölurnar þínar. Þú þarft ekki að gera neitt, nýi vefurinn birtist sjálfkrafa þegar þú skráir þig inn á meðan á innleiðingunni stendur. Appið og þjónustuvefurinn eru samstillt, svo þú getur byrjað í símanum og haldið svo áfram þar sem frá var horfið við skrifborðið.

Sala

Allar tiltækar greiðsluleiðir með einum hnappi

Nýi sölu-hnappurinn sameinar allar greiðsluleiðirnar þínar á einum stað og sýnir upphæðina fyrst og svo greiðslumátann. Taktu við snertilausri greiðslu í símanum þínum með Tap to Pay, sendu færslu beint í posann þinn, skráðu sölu með reiðufé eða búðu til greiðslubeiðni - sem er nú endurbætt og virkar eins í appinu og á þjónustuvefnum. Hvernig sem viðskiptavinurinn vill greiða, þá byrjar ferlið allt á sama stað.

Fjármál

Skýrari framsetning á sölu og uppgjöri

Nýja sölusíðan sameinar færslur, skýrslur og afköst á einum stað. Berðu saman daginn í dag við síðustu viku, komdu auga á annasömustu tímana þína og kafaðu ofan í einstakar færslur. Uppgjör eru líka skýrari: skoðaðu uppgjörin þín eftir dögum, posum og greiðsluleiðum, allt á einum stað. Ef uppgjör er einhvern tíma í bið sýnir appið þér nú nákvæmlega hvers vegna. Ef þú rekur fleiri en einn sölustað geturðu nú séð nákvæma sölu og afköst hjá hverjum og einum.

Teya AI

kynntu þér Teya AI

Teya AI er ný gervigreind innbyggð beint í appið. Spurðu einfaldra spurninga um reksturinn þinn, eins og af hverju salan var minni í síðustu viku eða hvenær söluhæsti dagur mánaðarins er, og fáðu svör byggð á þínum eigin gögnum. Gervigreindin getur líka gengið í verk fyrir þig, eins og að búa til greiðslubeiðni. Þessi eiginleiki fer í loftið í beta-útgáfu og verður innleiddur smám saman á næstu vikum.

Einnig í þessari uppfærslu

  • Stærri uppfærsla á greiðslubeiðnum. Beiðnir sem má nota mörgum sinnum og senda oftar en einu sinni, eftir þörfum. Hraðara ferli við að búa þær til og forskoða, og einn staður til að fylgjast með, deila og halda utan um allar beiðnir í appinu og á þjónustuvefnum. 

  • Nýtt hlutverk fyrir stjórnendur. Gefðu stjórnendum meiri heimildir en almennir starfsmenn hafa án þess að afhenda þeim lyklana, samhliða núverandi hlutverkum yfirmanna, bókara og starfsmanna. 

  • Uppfærðu upplýsingarnar þínar. Breyttu netfanginu þínu og símanúmeri á öruggan hátt án þess að þurfa að hafa samband við þjónustuverið. 

  • Sýnilegt lógó. Þegar þú hefur sett lógóið þitt á þjónustuvefinn birtist það á posaskjánum og á greiðslusíðunni þegar þú sendir greiðslubeiðnir. 

  • Skýrari yfirsýn yfir öll verð. Ein síða sem sýnir þjónustugjöld, samninginn og posaleiguna – allt á einum stað. 

Hvað þú getur gert og hvar

Hvar sem þú skráir þig inn eru tólin þín á sömu fjórum stöðunum. Hér er það sem þú getur gert í appinu, á þjónustuvefnum eða á báðum stöðum. Atriði merkt Nýtt komu með þessari uppfærslu.

MöguleikarTeya appiðÞjónustuvefur
Heim

Sérsniðin forsíðaNýtt

Veldu og raðaðu flýtileiðunum sem þú notar mest

Sala og yfirlit í fljótu bragði

Nýjasta salan, uppgjör og það sem þarfnast athygli

Stillingar og uppsetning

Samningar, teymi, bankaupplýsingar og aðgangsstillingar

Sala

Sala í rauntíma

Tekjur dagsins og þróun

Færslusaga

Allar greiðslur eru uppflettanlegar

Greiðslubeiðni

Senda greiðslubeiðnir úr símanum

Tap to Pay

Taka við greiðslum með símanum

Fjármál

Nýleg uppgjörNýtt

Daglegt yfirlit yfir uppgjör

Skýrslur og reikningar

Sækja uppgjörsskýrslur og reikninga

Gervigreind

Teya gervigreindNýtt

Spurðu út í reksturinn þinn

Kemur fljótlega

Appið fær nýtt útlit og viðmót með næstu uppfærslu og hefjum við leika í byrjun júlí. Uppfært verður í smáum skömmtum, en ekki þarf að sækja nýtt app - eingöngu að uppfæra þegar það verður í boði. Þjónustuvefurinn uppfærist svo sjálfkrafa þegar þú skráir þig inn. Ef þú lendir í einhverjum vandræðum er þjónustuverið okkar til staðar til að aðstoða þig.