Vörur

Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.

Verðskrá

Hjálp

//

Embedded Components og SSE fyrir POSLink

Embedded Components og SSE fyrir POSLink

Embedded Components og SSE fyrir POSLink

af

Team Teya

Sumarið er komið og með því koma spennandi tíðindi! Við hjá Teya kynnum hér nýjustu vörurnar okkar og uppfærslur sem gera greiðslur einfaldari, bæði fyrir ykkur og viðskiptavini ykkar.

Í lok síðasta árs kynntum við nýja Hosted Checkout lausn sem tekur við af eldri SecurePay-lausnum. Nú kynnum við til leiks nýjustu viðbótina í greiðslulausnum okkar: Embedded Components.

Embedded Components

Embedded Components gera söluaðilum kleift að halda viðskiptavinum alfarið inni á eigin vefsíðu og klára allt greiðsluferlið þar, án þess að vera færður yfir á greiðslusíðu. Lausnin er fljótleg í innleiðingu og styður Apple Pay og fleiri greiðslumöguleikar eru væntanlegir.

Lausnin er byggð með nýjustu öryggisstöðlum og hönnuð til að einfalda rekstur og samþættingu:

Helstu kostir eru:

  • PCI DSS samræmi - viðkvæmar kortaupplýsingar eru unnar hjá Teya

  • Nútímalegt viðmót sem er auðvelt að samþætta inn í núverandi veflausnir

Lausnin styður einnig tengingu viðskiptavina við greiðslulausnir yfir API, sem hentar sérstaklega vel samstarfsaðilum sem vilja sjálfvirknivæða uppsetningu líkt og við höfum gert með Pos lausnir.

Þeir sem eru tengdir núverandi greiðslusíðum/greiðslugáttum Teya mættu gjarnan heyra í okkur og stilla saman strengi fyrir uppfærslu

Embedded SSE fyrir POSLink-tengingar

Í haust bættum við stuðningi fyrir Server Sent Events (SSE) í POSLink API.

Með SSE geta kerfin fengið rauntímauppfærslur á stöðu færslna án þess að þurfa hefðbundið polling. Þetta einfaldar innleiðingu, minnkar þar af leiðandi óþarfa köll og gerir lausnina skilvirkari.

Hægt er að sjá nánar hvernig þetta virkar og hvernig á að innleiða SSE í POSLink í leiðbeiningunum okkar hér.

Ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með spurningar eða ábendingar. Hægt er að senda okkur tölvupóst á partnerships@teya.com en einnig er hægt að hringja í okkur í síma 560-1600. Við tökum glöð á móti þér

Bestu kveðjur,
Partnerships teymi Teya