Vöruuppfærslur
//
af
Team Teya

Á næstu dögum munum við gefa út nýja útgáfu af Teya appinu og þjónustuvefnum.
Þetta er stærsta uppfærsla sem við höfum framkvæmt síðan hvoru tveggja fór í loftið: til að einfalda þér lífið settum við markið á snyrtilega hönnun, skýrari yfirsýn og nýja eiginleika sem við erum spennt að kynna fyrir öllum með rekstur.
Allt sem þú hefur notað hingað til á þjónustuvefnum og appinu er enn til staðar, en við höfum fært eitthvað til þannig auðveldara sé að finna og nota það. Hér að neðan er stutt yfirferð yfir hvað er að breytast:
Aðgangur að nýja appinu og þjónustuvefnum
Við munum uppfæra notendur smám saman frá byrjun júlí.
Þú þarft ekki að gera neitt til þess að fá nýja appið, annað en að uppfæra það þegar þar að kemur. Þetta er sama app og áður og því þarft þú ekki að sækja nýtt. Þegar komið er að þér muntu sjá uppfærslu í App Store eða Google Play. Smelltu til að uppfæra appið og þá muntu sjá nýja útlitið.
Þjónustuvefurinn er einnig sá sami með sömu innskráningu. Aðgangurinn þinn ásamt öllum gögnum og öðru sem tengist þínum rekstri verður allt enn til staðar.
Nýtt og betra viðmót
Appið og þjónustuvefurinn eru nú byggð upp með sama hætti með öllu sem þú þarft, skipt niður á fjórar síður.

![]() | HeimSérsniðið yfirlit. Þú velur það efni sem þú notar mest og velur hvaða lykiltölur eru sýnilegar og aðgengilegar. Á þessum skjá eru stillingar aðgengilegar, bæði sem varða aðgangsmál, bankareikninga og aðrar viðskiptaupplýsingar. |
![]() | SalaSöluyfirlit, færslur og greiðslubeiðnir - allt á einum stað. |
![]() | FjármálHér sérðu uppgjörin þín og nýjustu greiðslur, ásamt nýju yfirliti sem sýnir uppgjör hvers dags. |
![]() | GervigreindNý Teya gervigreind sem getur svarað spurningum um reksturinn þinn og sýnt þér upplýsingar svo sem gröf og töflur. |
Nýir hlutir sem þú getur nýtt þér

Kynntu þér gervigreind Teya
Ný gervigreind Teya er innbyggð í appið og þjónustuvefinn. Þú getur spurt spurninga eins og „af hverju dróst salan mín saman í síðustu viku?“ eða „hvernig var salan mín í þessum mánuði í samanburði við síðasta?“. Þú getur einnig látið gervigreindina búa til greiðslubeiðni fyrir þig.

Fljótlegri leið til að taka við greiðslum
Nýja söluferlið í appinu sýnir upphæðina fyrst og svo velur þú greiðslumátann. Taktu við greiðslum með Tap to Pay, sendu færslur beint í posann þinn eða skráðu greiðslur þar sem þú hefur tekið við reiðufé - allt á sama staðnum.

Skýrara yfirlit yfir fjármálin þín
Nýja fjármálasíðan sameinar uppgjörin þín á einum stað. Skoðaðu uppgjör eftir dögum eða samningum og sjáðu fulla sundurliðun gjalda með skýru yfirliti.
Fleira nýtt
Þægilegra söluyfirlit sem sýnir þér hvernig reksturinn gengur. Berðu saman daginn í dag við síðustu viku, sjáðu hvenær er mest að gera og kafaðu dýpra ofan í einstaka færslur. |
Nytsamlegar upplýsingar um stöðu greiðslna og uppgjörs: þú veist alltaf hvað hefur verið greitt og hvað er á leiðinni til þín. |
Endurbættar greiðslubeiðnir sem virka með sama hætti í appinu og á þjónustuvefnum. |
Mismunandi tæki

Þjónustuvefurinn er eins, bara á stærri skjá
Þjónustuvefurinn hefur fengið sömu yfirhalningu svo það er ekkert mál að skipta á milli símans og tölvunnar. Sama uppbygging með sömu fjórum síðum - og betra plássi til að kafa ofan í sölutölurnar þínar.
Eins og við höfum sagt áður eru margar nýjunarnar tilkomnar vegna endurgjöf ykkar. Takk fyrir að hjálpa okkur að hjálpa ykkur.
Teya teymið







