Vörur

Fréttir

Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.

Verðskrá

Hjálp

Vöruuppfærslur

//

Spennandi uppfærsla er á leiðinni í posann þinn

Spennandi uppfærsla er á leiðinni í posann þinn

Spennandi uppfærsla er á leiðinni í posann þinn

af

Team Teya

Teya posinn þinn fær hugbúnaðaruppfærslu í þessari viku.

Þessi uppfærsla felur í sér algjöra endurhönnun á helstu greiðsluferlunum fyrir þig og þína viðskiptavini, með öflugum nýjum eiginleikum og einföldum flýtileiðum.

Hér er yfirlit yfir það sem fylgir uppfærslunni.

SJÁLFKRAFA UPPFÆRSLA - Posinn þinn uppfærist sjálfkrafa í þessari viku. Þú þarft ekkert að gera til að sækja uppfærsluna.

Nánar um uppfærsluna

Hér er það sem er nýtt fyrir þig og þína viðskiptavini, frá greiðslu til kvittunar.

Ennþá þægilegra greiðsluferli

  • Upphæðin er í forgrunni og auðlesin í fljótu bragði.

  • Skýrari hreyfimyndir leiða viðskiptavini í gegnum greiðslur með PIN-númeri, örgjörva og snertilausar greiðslur.

  • Viðskiptavinir þínir geta séð hvaða kortategundum þú tekur við á greiðsluskjánum.

Salan þín í fljótu bragði

Aðalvalmyndin sýnir nú yfirlit yfir söluna með tölum dagsins um leið og þú opnar hana.

  • Ýttu á Teya merkið efst til vinstri til að opna valmyndina.

  • Heildarsalan þín og nýjustu færslurnar, efst.

  • Heildaryfirlit yfir annasömustu tímana, þjórfé og endurgreiðslur.

  • Sjáðu öll tæki á posanum þínum og prentaðu eina skýrslu um söluna. Uppgjör eru enn sjálfvirk.

Flýtiaðgerðir á talnaborðinu

Flýtihnappeðir verða að flýtiaðgerðum og þær verða aðgengilegar á talnaborðinu.

  • Bættu tilvísunum aðeins við þær sölur sem þurfa þær.

  • Endurtaktu síðustu upphæð, færðu beint í færslulistann eða notaðu reiknivélina með nýjum möguleikum.

Greiðslubeiðnir og fljótlegri kvittanir

  • Greiðslubeiðnir eru sjálfgefið virkar þar sem þær eru í boði og nú er hægt að nýta hverja beiðni oft – umsjónin verður öll á sama stað.

  • Gefðu út endurgreiðslu eða endurtaktu greiðslu beint út frá kvittuninni.

Og fleira

  • Vörumerkið þitt við afgreiðsluborðið: Þegar posinn er í kassakerfisstillingu geturðu bætt lógóinu þínu við skjáinn sem snýr að viðskiptavininum, stillt á þjónustuvefnum.

  • Skýrari kvittanir: Prentaðu eða deildu kvittunum með auðveldum hætti.

  • Snjallari færslulisti: Sjáðu eftir posa, tímabili eða útstöð, sjáðu daglegar heildartölur og leitaðu eftir tilvísun eða síðustu 4 tölustöfum kortanúmers.

  • Við vonum að þetta létti aðeins á annasömustu dögunum þínum.

Teya teymið